Barþjónn nauðgaði vinnufélaga og bauð 10 kokteila gegn fyrirgefningu Gunnar Hrafn Jónsson skrifar 12. júní 2018 19:00 Brotaþoli vann frá 17 ára aldri við þjónustustörf á sama vinnustað og Topal, sem hefur starfað sem barþjónn á Íslandi. Vísir/Vilhelm
Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag Eral Topal í 5 ára fangelsi fyrir tvær nauðganir. Í niðurstöðu dómsins segir að önnur nauðgunin hafi verið sérstaklega langvinn og heiftúðleg. Topal er fæddur árið 1972 og er af tyrkneskum uppruna en hefur búið á Íslandi í meira en áratug. Fyrst nauðgaði hann konu sem hann hafði unnið með í um tvö ár eða frá því að hún var sautján ára. Það var í júlí 2015. Í dómnum kemur meðal annars fram að Topal reyndi að bjóða brotaþola kokteila til að bæta fyrir brot sitt dagana á eftir en hann er barþjónn að atvinnu og konan starfaði við þjónustustörf á sama vinnustað. Tæpu ári síðar, eða í maí 2016, nauðgaði hann konu sem hann hafði hitt á skemmtistað í miðbænum. Í dómnum kemur fram að Topal beitti konuna ýmsu ofbeldi, tók hana kverkataki, hótaði henni lífláti og sló hana auk þess að halda henni fastri, afklæða hana og þröngva til samræðis. Að sögn nágranna stóðu öskrin í um klukkustund áður en lögreglu bar að garði. Með brotum sínum braut Topal einnig gegn skilorði en hann var dæmdur í 6 mánaða skilorðsbundið fangelsi til tveggja ára fyrir líkamsárás árið 2014. Topal er samkvæmt dómi gert að greiða fyrri konunni eina milljón króna í miskabætur en hinni 1,8 milljónir.Lokað var fyrir ummæli við þessa frétt. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu.
Mest lesið Bandaríkin hafi samið við Danmörku um Grænland Erlent „Þetta er örugglega dauðastríð sem tekur langan tíma“ Innlent Íhuga að fara nýja leið og bjóða Rússum viðskiptasamninga Erlent KR-ingar harma sundátökin: „Mikilvægt að við hlúum hvert að öðru“ Innlent „Við höfum iðulega verið tossinn í bekknum“ Innlent „Ég þekkti strax höfuðið á henni úr fjarska“ Innlent „Það var bara blankalogn hjá þeim og þeir voru með óvirka vél“ Innlent Trump rekur CNN og fleiri fjölmiðla úr Hvíta húsinu Erlent Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Innlent Sjö um borð þegar bíll valt á Barðastrandarvegi Innlent Fleiri fréttir „Þetta er örugglega dauðastríð sem tekur langan tíma“ „Það var bara blankalogn hjá þeim og þeir voru með óvirka vél“ Sjö um borð þegar bíll valt á Barðastrandarvegi „Við höfum iðulega verið tossinn í bekknum“ KR-ingar harma sundátökin: „Mikilvægt að við hlúum hvert að öðru“ „Ég þekkti strax höfuðið á henni úr fjarska“ Steinhissa á sjö ára kröfu yfir „burðardýrum“ Undirrituðu viljayfirlýsingu um stækkun VMA Segja kröfulista Icelandair tefja samninga Carlsberg og Kamala komu við sögu í málsvörnum Sundþjálfari KR með hníf á lofti fyrir lykilfund sundfólks Ölvunarakstur ungmenna nálgast sögulegt hámark Fara fram á sjö og átta ár í Dettifossmálinu Fundi lokið án árangurs fimm dögum fyrir verkfall flugvirkja Viðar Örn gaf Sævari Louis Vuitton-tösku Miklar áhyggjur af þekkingunni sem glatist með starfslokunum Moskítóflugan virðist hafa gufað upp Enginn með stöðu sakbornings vegna banaslyssins Játar innbrot í búin Reyna að afstýra verkfalli og moskítóflugan horfin Níu ákærðir fyrir að flytja inn rúm hundrað kíló kókaíns „Er þetta ekki komið út í hártoganir?“ Lífsnauðsynlegt að meðhöndla risarækjur líkt og kjúkling Ríkissjóður gæti tekið yfir skuldir Rúv: „Skattgreiðendur borga reikning sem þeir áttu ekki von á“ Útlit fyrir úrkomubakka og þokuloft Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Fundað í flugvirkjadeilu Þurftu að keyra á hnífamann sem slóst við lögreglu Fjárlögin leiði til stöðnunar Landspítalans Áhugamálunum forgangsraðað framar náminu Sjá meira