Messan um Pogba: Spilar eins og unglingur í fýlu Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 12. febrúar 2018 14:30
Jose Mourinho skipti Paul Pogba af velli í leik Manchester United og Newcastle í gær eftir klukkutíma leik. Hann var ekki í byrjunarliðinu í leik gegn Huddersfield í síðustu umferð og var aftur tekinn af velli eftir klukkutíma gegn Tottenham þar á undan. Mikið hefur verið rætt um það í ensku pressunni hver ástæðan sé fyrir þessum skiptingum, hvort Pogba sé meiddur eða hvað sé á bak við þessar skiptingar. Mourinho sjálfur sagði að skiptingin væri af taktískum ástæðum. Ríkharð Óskar Guðnason tók Pogba fyrir í Messunni í gær. „Hann virðist vera eins og unglingur að spila, fer í fýlu og fór snemma inn úr upphituninni,“ sagði Bjarni Guðjónsson, einn sérfræðinga Messunnar. „Er hann í fýlu afþví Alexis Sanchez er kominn?“ spurði Rikki. Bjarni taldi það klárt að Frakkinn væri í fýlu, hvort sem það væri koma Sanchez eða þessar útaf skiptingar Mourinho sem væru að valda fýlunni. „Hann þarf að gera miklu meira. Kemur þarna og á að stjórna miðjunni, er ekki að skila því. Færður framar til að koma honum í meiri sóknarstöður en það gerðist ekkert hjá honum,“ hélt Bjarni áfram. „Mér hefur alltaf fundist hann vera betri þegar hann fær að spila með tveimur djúpum. Þegar hann er framar er hann ekki nógu áhrifaríkur,“ sagði Ríkharður Daðason. Hann sagði jafnframt að það væri óskiljanlegt ef Pogba ætlaði að vera í fýlu út af Sanchez og samningamálum, því það gæti hvort sem er ekkert gerst fyrr en í sumar og því þyrfti hann að eyða næstu þremur mánuðum í fýlu. Umræðuna má sjá í spilaranum hér að ofan.
Enski boltinn Mest lesið Óvæntar vendingar á elleftu stundu hjá Elísu í einu sterkasta hlaupi í heimi Sport Forsetinn tjáir sig um niðurbrotinn Alvarez: „Þykir þetta mjög miður“ Fótbolti Jón Arnór byrjar að þjálfa Körfubolti Tólf tíma þrekraun Elísu með þeim bestu í heimi: „Hentar mér mjög vel“ Sport „Ef enginn í NBA-deildinni getur stöðvað hann þá efast ég um að við vefjumst fyrir honum“ Körfubolti Uppgjörið: Borac - Víkingur 3-1 | Evrópuþátttöku Víkinga lokið Fótbolti Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Enski boltinn Umdeild auglýsing heldur áfram að draga dilk á eftir sér Golf Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Enski boltinn Víkingar gefa frá sér sætið í Olís-deildinni Handbolti Fleiri fréttir Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Savinho til Tottenham frá Manchester City Arsenal telur sig geta náð samkomulagi um kaup á Alvarez Sjáðu sögulegt mark João Pedro í sigri Chelsea Cody Gakpo orðaður við Manchester City Harvey Elliott virðist ekki vera hluti af framtíð Liverpool Chelsea sigldi sigrinum heim eftir að hafa náð forystu eftir 30 sekúndur Watkins virðist vilja fara frá Aston Villa Newcastle að fá miðjumann Man. City Sjá meira