Ferguson veitir Wenger stuðning Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 10. mars 2018 11:15 Wenger og Ferguson áttu í stirðu sambandi á meðan þeir áttust við á fótboltavellinum. Þeim er hins vegar vel til vina í dag Vísir/Getty
Arsenal hefur ekki átt góðu gengi að fagna síðustu vikur, að undanskildum sterkum útisigri gegn AC Milan í Evrópudeildinni í ný liðinni viku, og hefur Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, legið undir mikilli gagnrýni. Frakkinn hefur verið við stjórnvöllinn á Emirates í nærri 22 ár, síðan í ágúst 1996. Hann hefur sjaldan þurft að upplifa eins svarta tíma og nú síðustu vikur; tvö 3-0 töp gegn Manchester City í röð þar sem liðið spilaði virkilega illa og var afhúðað í fjölmiðlum og tap gegn Brighton sem þýðir að Skytturnar eru þrettán stigum frá fjórða sætinu þegar níu umferðir eru eftir í deildinni. Þetta slæma gengi hefur valdið Wenger miklum áhyggjum og hefur hann átt erfitt með svefn síðustu daga. Hann segir gagnrýnina vera særandi, en hann taki hana þó ekki of mikið inn á sig. „Ég veit að þeir hata mig ekki sem manneskju, heldur hata þeir stjórann sem skilar ekki góðum úrlsitum,“ sagði Wenger. Hann sagði marga hafa sýnt honum mikinn stuðning, þar á meðal mann sem var áður sagður erkióvinur Wenger, Skotann Alex Ferguson sem stýrði Manchester United til fjölda ára. „Ég á í mjög góðu sambandi við Ferguson. Hann sendir mér stundum skilaboð þegar hlutirnir ganga ekki nógu vel.“ „Við stjórarnir stöndum svolítið saman. Ég styð alltaf aðra stjóra og fæ stuðning frá þeim. Við erum allir í sama báti,“ sagði Arsene Wenger. Arsenal mætir Watford á sunnudaginn og verður leikurinn í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport frá 13:20.
Enski boltinn Mest lesið Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Enski boltinn Toppbaráttan í vetur: Vildi spá KR titlinum Körfubolti Wirtz sé búinn að missa trúna Enski boltinn Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Býður sig fram á móti Infantino Fótbolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Bakgarðsáskorunin: Soðnar kartöflur besta nestið Sport „Framkoman eins og við hverja aðra leikmuni“ Fótbolti Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik Handbolti Heimir þrefalt líklegri en Ísland til að fara á EM Fótbolti Fleiri fréttir Wirtz sé búinn að missa trúna Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Guardiola verður viðstaddur fyrsta heimaleik Manchester City eftir dóminn Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Arteta framlengir við Arsenal Mun mæta fyrir dóm eftir ofsaakstur Óvæntur meðlimur á liðsmynd Manchester United Dregur sig úr landsliðshópnum Meiddist í Portúgal Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Sjá meira