Leicester gekk frá West Brom Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 10. mars 2018 17:00 Vardy skoraði fyrir Leicester í dag vísir/getty
Það er hart barist í neðri hluta ensku úrvalsdeildarinnar þessa dagana þar sem aðeins 14 stig skilja á milli botnliðsins og 10. sætisins. Newcastle vann mikilvægan sigur á Southampton og komst fimm stigum frá fallsæti. Kenedy kom heimamönnum í Newcastle á bragðið eftir 63 sekúndur voru liðnar af leiknum með sínu fyrsta marki fyrir félagið. Hann bætti svo öðru marki sínu við eftir skyndisókn á 29. míníutu áður en Matt Ritchie gulltryggði sigurinn í seinni hálfleik. Leicester átti ekki í erfiðleikum með botnlið West Bromwich Albion sem fer að falla á tíma í ensku úrvalsdeildinni, liðið er sjö stigum frá Stoke og Crystal Palace í sætunum fyrir ofan sig og átta stigum frá öryggi. Leikurinn á The Hawthorns byrjaði þó vel fyrir heimamenn því Salomon Rondon kom þeim yfir strax á 8. mínútu. Það tók gestina frá Leicester hins vegar aðeins rúmar tíu mínútur að svara með marki frá Jamie Vardy. Jafnt var með liðunum í leikhléi en Riyad Mahrez kom Leicester yfir eftir um klukkutíma leik. Kelechi Iheanacho bætti þriðja markinu við á 76. mínútu og Vicente Iborra gulltryggði sigur Leicester með marki í uppbótartíma. Þá gerðu Huddersfield og Swansea markalaust jafntefli en bæði lið þurftu á sigri að halda. Þau eru jöfn að stigum, með 30 stig líkt og West Ham, og sitja í 13. og 15. sæti deildarinnar. Það eru hins vegar aðeins þrjú stig niður í fallsætið og bæði Crystal Palace og Stoke eiga leik til góða.
Enski boltinn Mest lesið Óvæntar vendingar á elleftu stundu hjá Elísu í einu sterkasta hlaupi í heimi Sport Serbía - Ísland 102-73 | Mættu með læti en máttu sín lítils undir lokin Körfubolti Jón Arnór byrjar að þjálfa Körfubolti Forsetinn tjáir sig um niðurbrotinn Alvarez: „Þykir þetta mjög miður“ Fótbolti Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Enski boltinn Man. City verður meistari Sport Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Enski boltinn „Ef enginn í NBA-deildinni getur stöðvað hann þá efast ég um að við vefjumst fyrir honum“ Körfubolti Eyjakonur og Haukar meistarar samkvæmt spánni Handbolti „Ég vona að ég þurfi ekki að dekka hann“ Körfubolti Fleiri fréttir Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Savinho til Tottenham frá Manchester City Arsenal telur sig geta náð samkomulagi um kaup á Alvarez Sjáðu sögulegt mark João Pedro í sigri Chelsea Cody Gakpo orðaður við Manchester City Harvey Elliott virðist ekki vera hluti af framtíð Liverpool Chelsea sigldi sigrinum heim eftir að hafa náð forystu eftir 30 sekúndur Sjá meira