Cardiff nálgast toppsætið Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 6. mars 2018 22:02 Jón Daði í leik með Reading. vísir/getty
Öll Íslendingaliðin í ensku 1. deildinni voru í eldlínunni í kvöld. Cardiff nálgast topplið Wolves, sem á þó leik til góða. Velska liðið vann Barnsley á heimavelli sínum 2-1 eftir að hafa komist í forystu þökk sé mörkum frá Callum Paterson og Marko Grujic. Eftir mark Oli McBurnie fyrir Barnsley var pressan á heimamönnum sem náðu að halda hana út og ná í sinn fimmta sigur í röð. Aron Einar Gunnarsson er enn utan hópsins hjá Cardiff eftir að hafa gengist undir aðgerð á fæti. Á hinum enda töflunnar varð Reading af mikilvægum stigum þegar liðið gerði jafntefli við Bolton sem eru í fallbaráttunni með þeim. Jón Daði Böðvarsson kom inn á 73. mínútu í stöðunni 1-1 en náði ekki að skora sigurmark fyrir Reading. Liðið er fimm stigum frá fallsæti eftir 35 leiki. Hörður Björgvin Magnússon var í byrjunarliði Bristol City en var látinn víkja á 64. mínútu í stöðunni 1-0 fyrir gestgjöfunum í Preston North End. Famara Diedhiou skoraði jöfnunarmark Bristol aðeins þremur mínútum eftir að Hörður Björgvin fór af velli. Það dugði þó ekki til því varamaðurinn Sean Maguire skoraði sigurmark PNE aðeins tveimur mínútum seinna, á 69. mínútu. Birkir Bjarnason fékk ekkert að koma við sögu í 3-0 útisigri Aston Villa á Sunderland. Villa er í þriðja sæti, fjórum stigum á eftir Cardiff. Bristol er dottið úr umspilssæti, niður í það sjöunda, stigi á eftir Middlesbrough.
Enski boltinn Mest lesið Er nýi Haaland íslenskur? Fótbolti Veggmynd hetju Spánverja á HM eyðilögð strax Fótbolti The Times: Norska sambandið mun kvarta undan Trump Fótbolti „Auðveldara að reka einn þjálfara en 23 leikmenn“ Íslenski boltinn Bergrós meðal fimmtán efstu eftir fyrsta daginn Sport Verið að rannsaka Inter Miami eftir kaupin á Casemiro Fótbolti Messi er mesti yfirburðamaður eins liðs í HM-sögunni Fótbolti Kærustuparið gerði það sem engum hafði tekist í sögu heimsleikanna Sport Fengu þyngd sína í tómötum fyrir að verða heimsmeistarar Fótbolti Mateus Fernandes með stórbrotið mark í fyrsta leik með Tottenham Enski boltinn Fleiri fréttir Eftirmaður Trossard er Grikki en kemur frá Belgíu Arsenal án lykilmanns í marga mánuði Mateus Fernandes með stórbrotið mark í fyrsta leik með Tottenham „Okkur vantar klárlega kantmann“ Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Sjá meira