Kólumbíumaður er tekinn við fótboltalandsliði Síle Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 9. janúar 2018 12:30 Reinaldo Rued. Vísir/Getty
Ísland er á leiðinni á HM í Rússlandi í sumar en þar verða ekki Suðurameríkumeistararnir frá Síle. Þeir hafa líka verið þjálfaralausir síðan að það varð ljóst í október. En ekki lengur. Síle hefur leitað til Kólumbíumannsins Reinaldo Rueda og mun hann fá það verkefni að rífa landslið Síle upp eftir vonbrigðin í undankeppni HM 2018.¡Bienvenido a #LaRoja, profe! Conoce los detalles aquí https://t.co/beEI2RrDAupic.twitter.com/2NmuGPbQ0g — Selección Chilena (@LaRoja) January 9, 2018 Það varð mörgum utan Síle mikil vonbrigði að stórstjörnur eins og þeir Alexis Sánchez og Arturo Vidal fái ekki að vera með á heimsmeistaramótinu í sumar. Heima fyrir er niðurstaðan líka mikið áfall fyrir lið sem hafði unnið tvær Suðurameríkukeppnir í röð. Argentínumaðurinn Juan Antonio Pizzi hætti með landsliðið eftir undankeppnina en Pizzi hafði tekið við liði Síle af landa sínum Jorge Sampaoli árið 2016. Á undan þeim var enn einn Argentínumaðurinn í þjálfarastólnum eða sjálfur Marcelo Bielsa. Argentínumaður hafði því þjálfað landslið Síle frá 2007 til 2017 eða í áratug. Nú færa Sílemenn sig frá Argentínu norður til Kólumbíu. Reinaldo Rued fær samning fram yfir heimsmeistarakeppnina 2022 sem fer fram í Katar. Reinaldo Rued er sextugur og var síðast þjálfari brasilíska stórliðsins Flamengo. Þetta verður ekki í fyrsta sinn sem hann tekur við starfi landsliðsþjálfara. Hann þjálfaði landslið Kólumbíu frá 2004 til 2006 og fór síðan með landslið Hondúras á HM 2010 og með landslið Ekvardor á HM 2014.
Fótbolti Mest lesið Ronaldo flogið til Spánar og staðan verri en talið var Fótbolti „Ég hef ekkert að sanna“ Enski boltinn Í fyrsta sinn á Íslandi: Kolbeinn mætir austurrískum rotara í Gamla bíó Sport Fastur í Ísrael og leitar skjóls í neðanjarðarbyrgjum Handbolti Íhuga brottrekstur eftir minna en mánuð Enski boltinn Jóhann heim til Íslands heilu og höldnu Fótbolti Robertson sá um að hefna Fótbolti Dómari sleginn niður í kvennaleik Körfubolti „Minnti á köflum á leik í minnibolta“ Körfubolti Uppgjör:Ármann - Njarðvík 87-104 | Sýning hr. Lautier-Ogunleye Körfubolti Fleiri fréttir Utan vallar: Græðgi undir hatti heilsu Íhuga brottrekstur eftir minna en mánuð „Ég hef ekkert að sanna“ Valverde bjargaði Real í blálokin Leiðin bein þó það vanti Kane Víkingurinn fljótur að láta til sín taka í Keflavík Meistararnir skoruðu sjö mörk gegn Víkingi Robertson sá um að hefna Jóhann heim til Íslands heilu og höldnu Vill breytingar og býður dómurum á æfingasvæðið Ronaldo flogið til Spánar og staðan verri en talið var Evrópumeistararnir þurfi að vera upp á sitt besta til að vinna Ísland Segir dómgæslu skaða titilvonir Man City Man United gerði hærra tilboð í Bale Arsenal-menn létu bíða eftir sér í 30 mínútur og 51 sekúndu Mættur til Skagamanna á Tenerife og gæti spilað gegn KR um helgina „Konan mín gagnrýndi það sem ég sagði og mamma mín líka“ Var með krabbamein á HM „Láttu í þér heyra, Orri!“ Leita að treyju félagsins sem Madonna klæddist árið 1990 Fær Barbie-útgáfu af sér fyrir Íslandsleikinn Sjáðu mörkin sem fengu stuðningsmenn Tottenham til að fara í hálfleik Messi eyddi kvöldinu með Trump Annar þjálfari hættur skömmu fyrir HM Fram fær hávaxna Hvergerðinginn Þróttarar fyrstir til að vinna Fylki og enn barist um efsta sætið Algjört hrun Spurs sem er stigi frá fallsæti RÚV má gera fleiri auglýsingahlé í hverjum leik á HM Wirtz snúi aftur gegn Wolves Bræður settir í bann en fyrirliðinn sér tækifæri í skandalnum Sjá meira