Aldrei meira að gera hjá De Gea en á þessu tímabili Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 9. apríl 2018 14:30 Það hefur verið nóg að gera hjá David De Gea í vetur. Vísir/Getty
Spænski markvörðurinn David De Gea hefur átt frábært tímabil með Manchester United og á mikinn þátt í því að United-liðið er í öðru sæti ensku úrvalsdeildarinnar og á enn tölfræðilega möguleika á að vinna enska meistaratitilinn. Þetta er sjöunda tímabil David De Gea á Old Trafford en tölfræðin sýnir að það hefur aldrei verið meira að gera hjá honum en á þessari leiktíð. David de Gea kom til Manchester United frá Atlético Madrid árið 2011 og náði að verja 102 skot á sínu fyrsta tímabili í ensku úrvalsdeildinni. Það er enn met hjá kappanum en ekki mikið lengur. Eftir frábæra frammistöðu í sigrinum á toppliði Manchester City um helgina hefur spænski markvörðurinn nú varið 101 skot á þessu tímabili. Hann fær því sex leiki til að verja tvö skot til viðbótar og bæta persónulega metið sitt.Most saves made by David De Gea in a single Premier League campaign: 2011/12: 102 2017/18: 101 2013/14: 97 2014/15: 92 2012/13: 84 2015/16: 81 2016/17: 74 Dave is busy this season. pic.twitter.com/54j8zyf2ee — Squawka Football (@Squawka) April 8, 2018 Tölfræðin sýnir svart á hvítu að De Gea hafi aldrei áður haft eins mikið að gera í marki Manchester United og á þessu tímabili. Hann hefur þegar fengið á sig 126 skot og De Gea hefur náð að verja 80 prósent þeirra. De Gea er að fá á sig 3,9 skot í leik sem er það mesta á ferlinum. Hann hefur mest fengið á sig 140 skot á einu tímabili (2013-14) og þarf því „aðeins“ að fá sig 15 skot í síðustu sex leikjum til að slá það met sitt. De Gea hefur aldrei áður náð að verja yfir 80 prósent skota sem hafa komið á honum og þá er hann að fá á sig mark á 115,2 mínútna fresti sem væri líka persónulegt met hjá honum. Best áður hjá honum var 77,9 prósent markvarsla á fyrsta tímabili hans (2011-12) og svo mark á 108,6 mínútna fresti á síðustu leiktíð. De Gea hefur þegar bætt metið sitt yfir að halda marki sínu hreinu en því hefur kappinn náð 16 sinnum í 32 leikjum í vetur eða nákvæmlega í öðrum hverjum leik.
Enski boltinn Mest lesið Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Enski boltinn Elías og félagar flugu áfram Fótbolti Uppgjörið: Borac - Víkingur 3-1 | Evrópuþátttöku Víkinga lokið Fótbolti Reynir Þór með fína frammistöðu í tapi Handbolti Palacios til Ipswich Enski boltinn Gísli tekur við og stýrir Víkingi í næstefstu deild Handbolti Tólf tíma þrekraun Elísu með þeim bestu í heimi: „Hentar mér mjög vel“ Sport Róbert Frosti og Daníel Tristan á skotskónum Fótbolti Dregið í Meistaradeild: Hákon mætir Arsenal og Bayern Fótbolti Rodri kom inn af bekknum í sigurleik Fótbolti Fleiri fréttir Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Savinho til Tottenham frá Manchester City Arsenal telur sig geta náð samkomulagi um kaup á Alvarez Sjáðu sögulegt mark João Pedro í sigri Chelsea Cody Gakpo orðaður við Manchester City Harvey Elliott virðist ekki vera hluti af framtíð Liverpool Chelsea sigldi sigrinum heim eftir að hafa náð forystu eftir 30 sekúndur Watkins virðist vilja fara frá Aston Villa Newcastle að fá miðjumann Man. City Efast um Iraola: „Hvar eru stóru strákarnir“ Reknu vinirnir mætast í London Myndi ekki sofa á nóttunni: „Enn þá bara sama gamla Tottenham“ Liverpool og City muni ekki berjast um titilinn Sjá meira