Hlutfallslega færri kjósa utan kjörfundar Gunnar Hrafn Jónsson skrifar 25. maí 2018 12:34 Rúmlega tíu þúsund hafa kosið utan kjörfundar
Hlutfallslega færri hafa kosið utan kjörfundar í Reykjavík nú en í síðustu sveitarstjórnarkosningum. Tvöfalt fleiri kusu utan kjörfundar í Alþingiskosningum í fyrra. Ekki er hægt að kjósa utan kjörfundar innan borgarmarkanna að þessu sinni. Reykvíkingar þurfa að fara í Smáralindina í Kópavogi til að kjósa. Fyrstu vikuna mættu fleiri en á sama tímabili í síðustu sveitarstjórnarkosningum en nokkuð hefur dregið úr kjörsókn undanfarna daga. Svipað margir hafa nú kosið og síðast, rúmlega tíu þúsund. Fleiri eru hins vegar á kjörskrá en síðast og hlutfall þeirra sem greiddu atkvæði utan kjörfundar er því lægra en árið 2014. Bergþóra Sigmundsdóttir, sviðsstjóri þinglýsinga- og leyfasviðs hjá sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu, segir að almennt sé kjörsókn utan kjörfundar mun lakari í sveitarstjórnarkosningum en í kosningum til forseta og Alþingis. Tvöfalt fleiri hafi kosið utan kjörfundar í þeim kosningum. „Miðað við forsetakjör er þetta mikill munur. Þá voru miklu fleiri sem kusu utan kjörfundar. Það var í júní þannig að fólk var margt á faraldsfæti,“ segir Bergþóra. „Þetta er líka minna en í Alþingiskosningum 2016 og 2017. Það er meðal annars vegna þess að Íslendingar sem búa erlendis hafa ekki kosningarétt í sveitarstjórnarkosningum.“ Hægt verður að greiða atkvæði utan kjörfundar í Smáralind til klukkan tíu í kvöld.
Mest lesið Gefst upp og flytur eftir sjö ára mótmæli Innlent Sjá sér með engu móti fært að ná björgunarflugi Innlent Hola í vegi tók fjóra bíla úr umferð á vanræktum vegkafla Innlent Mikill meirihluti féll fyrir íslenskri gervigreindarmynd Innlent Noem rekin Erlent Vaktin: Átökin breiðast enn út Erlent „Erum við ekki að fara aðeins fram úr okkur“ Innlent Brynjar ráðinn korter í kosningar Innlent Jón Baldvin segir söguskýringu Dags af og frá: Samdi við Davíð um EES Innlent Handleggsbrotinn eftir átök við þingmann Erlent Fleiri fréttir Algengasta tegundin sem skráð hefur verið á Íslandi Vegfarandi á sjúkrahús og Kringlumýrarbraut lokað eftir þriggja bíla árekstur Eyjólfur færir klukkuna aftur Vilja lokka höfuðborgarbúa norður og lofa nóg af bílastæðum „Margir staðir og margir sakborningar“ Rannsakar geimveður fyrir Bandaríkjaher „Er ekki alltaf gerlegt við þessar kringumstæður“ Viðreisn opinberar listann í Kópavogi Tveir í varðhaldi vegna hópárásar í miðbæ Plóma mjólkar mest allra kúa og setti Íslandsmet Þessi leiða Viðreisn í Garðabæ Kynnir hvenær þjóðaratkvæðagreiðsla um viðræður við ESB fer fram Þau skipa lista Viðreisnar í Reykjavík Ráðist var á ungmenni í strætóskýli Íslendingar á flótta, nýr listi og fegrunaraðgerðir karla Óþolandi tafir vegna ágreinings við landeigendur heyri sögunni til Bein útsending: Kynna lista Viðreisnar borginni „Enginn meira hrelldur en ég þegar rödd Eiríks hljómaði á línunni“ Dómur barnaníðingsins Brynjars staðfestur Gefst upp og flytur eftir sjö ára mótmæli Hættur við lágmarksíbúafjölda í sveitarfélögum Blöskrar viðbrögðin eftir tilnefningu fyrir mistök Breiðu bökin verði skattlögð svo forsendur kjarasamninga standist Komin með ógeð af því að hlusta á „hverja silkihúfuna á fætur annarri“ Ákvarðanir teknar af heift en ekki skynsemi Andstæðingum borgarlínu hafi verið bolað af lista Fjórir handteknir eftir alvarlega líkamsárás „Þessi umræða er rosalega niðurlægjandi“ ASÍ segir niðurskurðaraðgerðir ekki koma til greina Þór styrkti Kvennaathvarfið og fær að halda pútternum Sjá meira