Enski boltinn

Tímabilið búið hjá Michail Antonio

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Michail Antonio fagnar.
Michail Antonio fagnar. vísir/getty
Tímabilinu er lokið hjá enska sóknarmanninum Michail Antonio en hann yfirgaf leikvöllinn eftir aðeins tíu mínútna leik þegar West Ham vann 3-0 sigur á Southampton í ensku úrvalsdeildinni í gær.

Antonio hefur glímt við þrálát meiðsli undanfarna mánuði en hann var leikmaður ársins hjá West Ham á síðustu leiktíð.

Hann vann sér til að mynda sæti í enska landsliðshópnum en þurfti hins vegar að draga sig úr hópnum vegna meiðsla og hefur svo meiðst reglulega síðan.

West Ham er aðeins fimm stigum frá fallsvæðinu þegar sjö umferðir eru eftir af mótinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×