Hverfa af vinnumarkaði vegna örorku Höskuldur Kári Schram skrifar 12. febrúar 2018 20:30
Hlutfall þeirra sem hafa horfið af vinnumarkaði vegna örorku eða annarra veikinda er mun hærra hér á landi en á Norðurlöndum. Formaður Öryrkjabandalagsins segir að fólk með skerta starfsgetu eigi í miklum erfiðleikum með að fá vinnu. Atvinnulíf á Norðurlöndum er meðal annars til umfjöllunar í skýrslu norrænu ráðherranefndarinnar sem var birt í síðustu viku. Staðan hér á landi er almennt góð í norrænum samanburði. Atvinnuþátttaka með mesta móti og atvinnuleysi lítið. Ísland sker sig þó úr þegar kemur að ástæðu þess að fólk hefur horfið af vinnumarkaði.Í rúmlega áttatíu prósent tilvika er um örorku eða veikindi að ræða sem er mun hærra hlutfall en annars staðar á Norðurlöndum. Rúmlega tuttugu prósentustigum fyrir ofan Noreg og nærri fjórfalt miðað við Finnland þar sem hlutfallið er lægst. Þuríður Harpa Sigurðardóttir formaður Öryrkjabandalags Íslands segir afar erfitt fyrir fólk að komast aftur inn á vinnumarkaðinn ef það lendir í örorku. „Öryrkinn hefur engin tækifæri til þess að afla sér tekna. Það borgar sig ekkert fyrir hann að fara út á vinnumarkað hafandi litla starfsgetu. Hlutastörf í dag fyrir fólk með litla starfsgetu eru ill fáanleg og ef þú kemst á vinnumarkaðinn þá byrjar ballið þannig að þú ert skertur krónu á móti krónu,“ segir Þuríður. Fólk sé þannig fast í vítahring skerðinga þó það hafi getu og vilja til að starfa á vinnumarkaði. „Um síðustu áramót voru yfir 400 manns með skerta starfsorku í virkri atvinnuleit hjá Vinnumálastofnun. Það virðist eiga litla möguleika að fá vinnu,“ segir Þuríður
Mest lesið Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Innlent Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Erlent Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Erlent Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair Erlent Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Innlent Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Innlent Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Erlent Heimili rýmd nærri herflugstöð Erlent Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Erlent Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Erlent Fleiri fréttir Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Fá loksins að fagna aldarafmælinu „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Fluttur til aðhlynningar eftir umferðarslys Tortímir gervigreindin mannkyninu? Sjá meira