Geta tryggt titilinn með sigri á United: „Tækifæri sem gefst bara einu sinni á ævinni“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. mars 2018 10:30 Vincent Kompany leiðir lið Manchester City út í leik á móti Manchester United. Vísir/Getty
Manchester City vann 2-0 sigur á Stoke City í lokaleik 30. umferðar ensku úrvalsdeildarinnar í gærkvöldi og vantar nú aðeins tvo sigra í viðbót til að tryggja sér Englandsmeistaratitilinn. Manchester City náði aftur sextán stiga forystu á Manchester United en núna eru bara 8 leikir og 24 stig eftir í pottinum. Vincent Kompany, fyrirliði Manchester City, er ekki lengur að tala um hvort liðið verði enskur meistari heldur hvenær. Hann hefur augun á því að tryggja sér titilinn 7. apríl næstkomandi. Manchester City tekur þá á móti nágrönnum sínum úr Manchester United. Takist City að vinna Everton í næsta leik þá fá þeir tækifæri til að tryggja sér titilinn í byrjun apríl og með sigri á erkifjendum sínum frá rauða hluta Manchester borgar. „Allir í bláa hlutanum af Manchester vita að þetta er tækifæri sem gefst bara einu sinni á ævinni,“ sagði Vincent Kompany við BBC eftir leikinn. „Pössum okkur samt. Við munum ekki fá þetta á silfurfati,“ sagði Kompany. Það var ekki alveg sama hljóðið í knattspyrnustjóranum Pep Guardiola. „Nú erum við tveimur eða þremur leikjum frá því að verða meistarar en það skiptir engu máli hvenær við tryggjum okkur titilinn,“ sagði Pep Guardiola. „Við erum komnir mjög nálægt þessu núna. Við erum komnir með 81 stig sem er heilmikið. Við áttum traustan leik, stjórnuðum leiknum og fengum engin færi á okkur,“ sagði Guardiola. „Það er erfitt að tryggja sér titilinn og það er flókið. Okkar félag hefur ekki reynslu af því að vinna marga ttila. Það er því betra að tryggja okkur þennan sem fyrst en það skiptir samt engu máli hvar við tryggjum okkur hann,“ sagði Guardiola. „Ég skil það samt að það er mikilvægt fyrir stuðningsmenn okkar að tryggja okkur titilinn á móti United en næsta markmið er Everton-leikurinn. Eftir það og ef við spilum eins og í kvöld þá tryggjum við okkur titilinn fyrr en síðar,“ sagði Guardiola.
Enski boltinn Mest lesið Er nýi Haaland íslenskur? Fótbolti Veggmynd hetju Spánverja á HM eyðilögð strax Fótbolti Bergrós meðal fimmtán efstu eftir fyrsta daginn Sport Verið að rannsaka Inter Miami eftir kaupin á Casemiro Fótbolti Þurfti að hætta við æfingu eftir mótmæli leikmanns Fótbolti Fengu þyngd sína í tómötum fyrir að verða heimsmeistarar Fótbolti Féll í yfirlið í miðjum leik Sport Messi er mesti yfirburðamaður eins liðs í HM-sögunni Fótbolti Mæra Messi fyrir muninn á færslum hans eftir sigur- og tapleiki Fótbolti Kærustuparið gerði það sem engum hafði tekist í sögu heimsleikanna Sport Fleiri fréttir Mateus Fernandes með stórbrotið mark í fyrsta leik með Tottenham „Okkur vantar klárlega kantmann“ Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Sjá meira