Samkeppnishæfni Íslands enn langt á eftir Norðurlöndunum Jón Hákon Halldórsson skrifar 31. maí 2017 07:00 Ísland stendur ekki jafn framarlega og önnur norræn ríki þegar kemur að innviðum að mati höfunda nýrrar skýrslu. vísir/daníel
Ísland hækkar um þrjú sæti á lista yfir samkeppnishæfni þjóða og vermir 20. sæti á listanum. Niðurstaðan byggir á úttekt IMD-viðskiptaháskólans. Helstu ástæður hækkunar er aukin skilvirkni hjá hinu opinbera og í atvinnulífinu. Efnahagsleg frammistaða landsins mælist lakari en áður, þótt hagvöxtur sé sterkur og atvinnustig hátt. Það eru einkum þættir tengdir alþjóðaviðskiptum og fjárfestingu sem gera efnahagslega frammistöðu lakari, vegna styrkingar krónu. Vöruútflutningur fylgir ekki hagvexti auk þess sem innlend fyrirtæki hugsa sér til hreyfings. Ísland stendur hinum Norðurlandaþjóðunum enn að baki þrátt fyrir að bilið minnki milli ára. Danmörk lækkar um eitt sæti milli ára og er í sjöunda sæti, Svíþjóð lækkar um fjögur sæti og er í níunda sæti og Noregur um tvö og er í ellefta sæti. Finnland hækkar hins vegar um fimm sæti milli ára og situr nú í fimmtánda sæti listans. Kristrún segir að þetta megi skýra með því að Norðurlandaþjóðirnar standi allar ofarlega þegar kemur að skilvirkni hins opinbera og samfélagslegum innviðum. „Það sem hefur haldið aftur af okkur núna í ár eru innviðirnir þó að í heildina litið stöndum við okkur kannski ekkert illa í því,“ segir Kristrún. Með samfélagslegum innviðum er átt við þætti eins og vegakerfi, heilbrigðiskerfið og fleira. Kristrún segir að hin Norðurlöndin séu öll í efstu fimm sætunum þar en Ísland er í sautjánda sæti. Þá mælist skilvirkni atvinnulífs, þar sem horft er meðal annars til framleiðni, almennt hærri á hinum Norðurlöndunum.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Innlent Hvar er opið á aðfangadag? Innlent Tveir lögreglumenn sprengdir í loft upp Erlent Blússandi hagvöxtur í Bandaríkjunum Erlent Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Innlent Bæta við allt að 200 íbúðum og mathöll í Spöngina Innlent Foreldrar skipverjans fá áheyrn í Hæstarétti Innlent Maður í umferðarslysi reyndist fíkniefnasali Innlent Arion banki varar við svikaherferð Innlent Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Innlent Fleiri fréttir Gleðileg jól, kæru lesendur Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Skiluðu hagnaði á kosningaári Hátíðarveisla á kaffistofu Samhjálpar: „Það er ró og friður yfir fólki“ Björgunarsveitin kölluð út í fokverkefni Grjóthrun undir Eyjafjöllum Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Arion banki varar við svikaherferð Innanlandsflugi aflýst Foreldrar skipverjans fá áheyrn í Hæstarétti Hvar er opið á aðfangadag? Innflytjendamálin almenningi efst í huga Bæta við allt að 200 íbúðum og mathöll í Spöngina Maður í umferðarslysi reyndist fíkniefnasali Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Hafnar „jólakveðju“ ríkisins Hefði þurft hjólbörur undir öll verðlaunin sín Ýmis ráð til taugatrekktra á Þorláksmessu Ekkert því til fyrirstöðu að Ásthildur Lóa verði aftur ráðherra Óvissa um ráðherraskipan og skata fyrir byrjendur Maðurinn fundinn Sigríður Halldórsdóttir nýr ritstjóri Kastljóss Íslendingur í gæsluvarðhaldi í Kólumbíu vegna gruns um kynferðisbrot Forsætisráðuneytið eyddi meiru í almannatengla í fyrra en í ár Inkalla snuð vegna of mikils magns BPA-plastefna Svanhildur Sif heiðruð Falskar netverslanir: Auglýsir rýmingarsölu nokkrum dögum eftir opnun Meðallaun upplýsingafulltrúa hækkuðu hlutfallslega mest Skötuilmurinn leggst yfir landið og Samkeppniseftirlitið ætlar að fylgjast vel með bensínverðinu Áfram auknar líkur á eldgosi Sjá meira