Skulda yfir þrjá milljarða í sektir Benedikt Bóas skrifar 5. apríl 2017 06:00 Skortur er á virkum innheimtuúrræðum í samanburði við svipuð úrræði á öðrum Norðurlöndum. Fæstir af þeim 2.859 sem bíða vararefsinga enda á Litla-Hrauni því flestir taka refsinguna út í samfélagsþjónustu. vísir/anton
Sektir og sakarkostnaður sem komið er í svokallað vararefsingarferli nemur 3,2 milljörðum króna. Fjöldi einstaklinga sem bíður að komast í afplánun vegna þeirra telja 2.859. Þá á eftir að birta 1.946 einstaklingum ákvörun um vararefsingarferli. Illa gengur að innheimta sektirnar hér á landi því sé sektin yfir átta milljónir er innheimtuhlutfallið aðeins 5%. Hlutfallið er 25-35% fyrir smærri sektir. Þetta kemur fram í fjármálaáætlun ríkisins til ársins 2022. Vinnuhópur er starfandi til að skoða virkari innheimtuúrræði og mun hann koma með tillögur að breytingum. Ekki kemur fram hvenær hann á að skila tillögunum. Frumvarp Ólöfar Nordal frá síðasta ári gekk mun lengra í að reyna að innheimta sektir en áður enda hafði komið fram að í Noregi er innheimtuhlutfallið 90-95%. Nú mega sýslumenn, sem, annast fullnustu sekta, innheimta ógreidda sekt og sakarkostnað, með aðför. Auk þess mega þeir fá aðgang að fasteigna-, skipa- og ökutækjaskrá til eignakönnunar sem og að kanna hugsanlegar eignir sem skuldarar varðveita í bönkum, sparisjóðum og öðrum fjármálafyrirtækjum. Er fjármálafyrirtækjum skylt að upplýsa sýslumenn án endurgjalds um eignastöðu skuldara. Í skýrslu ríkisendurskoðun um eftirlit með innheimtu sekta og sakarkostnaðar kemur fram að fangelsi hafi lítið verið nýtt til afplánunar vararefsinga og boðunarlisti vegna þeirra lengist. Skortur á fangarýmum veldur því að nánast útilokað sé að boða þessa aðila til afplánunar. Flestir afplána vararefsingar fésekta í samfélagsþjónustu. Þá fjölgi þeim sem eru svo lengi á boðunarlista vararefsinga að þær fyrnast áður en til afplánunar segir í skýrslunni. Í fjármálaáætluninni er bent á að fjöldi refsinga sem fyrnast hafi aukist talsvert undanfarin ár þrátt fyrir uppbyggingu. Fjöldi þeirra sem bíður afplánunar óskilorðsbundinna fangelsisrefsinga er 550 einstaklingar og hefur árafjöldi refsinga einnig hækkað undanfarin ár. Í fjármálaáætluninni, þar sem alltaf eru skýr markmið til ársins 2022, er bent á að unnið sé að viðmiðum varðandi innheimtuárangurinn.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður Innlent Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Innlent Fleiri fréttir Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Sjá meira