Bjarni segir Ólöfu hafa haft hlýja nærveru og skarpa sýn Heimir Már Pétursson skrifar 17. febrúar 2017 20:15
Fjölmenni var við útför Ólafar Nordal fyrrverandi innanríkisráðherra og varaformanns Sjálfstæðisflokksins í Dómkirkjunni í dag. Forsætisráðherra segir Ólöfu hafa haft hlýja nærveru, skarpa sýn og vilja til að vinna að framförum fyrir landið, fyrir fólk, með fólki. Ólöf Nordal fæddist í Reykjavík hinn 3. desember árið 1966 og lést hinn 8. febrúar eftir rúmlega tveggja ára baráttu við krabbamein. Fullt var út úr dyrum í Dómkirkjunni í dag en gestir gátu einnig fylgst með útförinni á skjá í Iðnó og í Odfellow húsinu. Fjölmargir minnast Ólafar í minningargreinum í fjórum opnum í Morgunblaðinu í dag. Þeirra á meðal er Bjarni Benediktsson forsætisráðherra. Hann segir Ólöfu ósjaldan hafa minnt hann á nauðsyn þess að tala við fólkið í flokknum. „Hún lagði ávallt áherslu á að vera aðgengileg og í góðum tengslum við þá sem hún starfaði fyrir. Um leið var hún óhrædd við að taka skýra afstöðu og tala fyrir henni, skýra málin fyrir fólki. Sótti frekar í en forðaðist þá sem hún vissi að voru efins eða annarrar skoðunar. Þetta átti ekki síst við þegar mikið lá við og fólk kallaði eftir því að ræða stöðu landsmálannaf,“ segir Bjarni í minningargrein sinni. Ólöf hafi búið yfir mannkostum sem ekki væru auðfundnir, haft hlýja nærveru, skarpa sýn og viljann til að vinna að framförum fyrir landið með fólki og fyrir fólk.. Séra Sveinn Valgeirsson jarðsöng og fjöldi tónlistarmanna flutti tónlist við athöfnina. Forsætisráðherra bar kistu Ólafar úr kirkju ásamt Ögmundi Skarphéðinssyni, , Gunnari Haraldssyni, Ingibjörgu Jóhannsdóttur, Jóni Gunnarssyni Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur, Mörtu Nordal og Ásthildi Sturludóttur. Fyrir utan kirkjuna stóðu ungir sjálfstæðismenn heiðursvörð með íslenska fánaborg og sýndu þar með hinstu virðingu fyrir Ólöfu Nordal sem naut mikillar virðingar og trausts innan Sjálfstæðisflokksins og raunar langt út fyrir raðir hans.
Mest lesið Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Innlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Erlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Innlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent Fleiri fréttir Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíknefnasmygls Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Sjá meira