Var sagður hafa notað kreditkort skáta í eigin þágu Þórgnýr Einar Albertsson skrifar 2. febrúar 2017 07:00 Skátar í skrúðgöngu. vísir/daníel
Í niðurstöðu bráðabirgðaskýrslu löggilts endurskoðanda Bandalags íslenskra skáta (BÍS) um rannsókn á fjármálum fyrrverandi framkvæmdastjóra BÍS, Hermanns Sigurðssonar, segir að hann hafi meðal annars notað kreditkort skáta í eigin þágu og keypt með því skíðaboga á bíl sinn. Þá segir í skýrslunni að hann hafi greitt sér hærri dagpeninga en reglur ríkisskattstjóra segja til um og greitt sér hærri laun en honum var heimilt samkvæmt ráðningarsamningi. Einnig segir að Hermann hafi greitt sér þrettánda mánuðinn í október 2015. Í ráðningarsamningi var sagt að hann ætti rétt á þeim bónus í lok árs. Hermanni var vikið úr starfi í desember síðastliðnum og var ástæðan sögð trúnaðarbrestur á milli hans og meirihluta stjórnar bandalagsins. Á lokuðum fundi forystu skátafélaga á landinu kom fram að hluti af trúnaðarbrestinum tengdist fjárreiðum framkvæmdastjórans fyrrverandi. Á þeim fundi voru fyrrgreindar niðurstöður kynntar. Var þá samþykkt að frekari rannsókn færi fram á fjárreiðum framkvæmdastjórans. Þeirri rannsókn á að ljúka fyrir aðalfund skátahreyfingarinnar, skátaþing, sem fer fram þann 11. mars næstkomandi. Bragi Björnsson, þáverandi skátahöfðingi BÍS, vildi ekki tjá sig um málið þegar Fréttablaðið náði tali af honum. Hann staðfesti þó að hann hefði sjálfur lagt til að framkvæmdastjóranum yrði sagt upp vegna gruns um óeðlilega fjársýslu. Bragi sagði sjálfur af sér í janúar vegna deilna um forystu skátastarfs í landinu. Hermann vildi ekki tjá sig um ásakanirnar en vísaði á stjórn BÍS. „Ég má ekki tjá mig um mál einstakra félagsmanna,“ segir Heiður Dögg Sigmarsdóttir, formaður upplýsingaráðs Bandalags íslenskra skáta, aðspurð um mál Hermanns. Uppfært klukkan 15:24Stjórn Bandalags íslenskra skáta hefur sent frá sér tilkynningu vegna umfjöllunar um málið. Hana má lesa hér að neðan:Stjórn Bandalags íslenskra skáta (BÍS) vill koma eftirfarandi á framfæri vegna umræðu í fjölmiðlum um meint fjármálamisferli fyrrverandi framkvæmdastjóra hreyfingarinnar. Í kjölfar uppsagnar fyrrverandi framkvæmdastjóra tók stjórn BÍS ákvörðun um að fá óháðan aðila til að rannsaka fjárreiður BÍS. Þeirri vinnu er ekki lokið, en samkvæmt bráðabirgðarskýrslu löggilts endurskoðanda liggur fyrir að ekkert bendi til þess að um saknæmt athæfi að ræða hvað varðar fjársýslu fyrrverandi framkvæmdastjóra. Niðurstöður bráðabirgðarskýrslunnar voru kynntar af viðkomandi endurskoðanda á félagsforingjafundi sem haldin var þann 14. janúar síðastliðinn. Á fundinum ítrekaði endurskoðandinn að hann teldi ekki, á grundvelli þeirra gagna sem lægju fyrir, að um neitt saknæmt athæfi væri að ræða af hálfu fyrrverandi framkvæmdastjóra. Á félagsforingjafundinum gafst öllum hlutaðeigandi tækifæri til að tjá sig um málið og náðist ákveðin sátt um deilumálin, meðal annars um fjármál fyrrverandi framkvæmdastjóra.fundarins. Framundan er aukaskátaþing og svo kjör nýs skátahöfðingja.
Birtist í Fréttablaðinu Tengdar fréttir Deilur innan Skátanna: Skátahöfðingi stígur til hliðar Vonast til þess að sátt skapist um forystu skátastarfs á landinu. 14. janúar 2017 21:03 Mest lesið Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Innlent Of þung en annars hraust á Ozempic Innlent Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Innlent Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Innlent Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Innlent Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu Innlent Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Innlent Myndband sýnir árás Diddy Erlent „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Innlent Fleiri fréttir Þungar áhyggjur af þyngdarstjórnunarlyfjum Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Nauðsynlegt að fresta atkvæðagreiðslu um umdeilda verksmiðju Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Átök í Ölfusi og offitulyf Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Of þung en annars hraust á Ozempic Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Lífleg og skrautleg kosningabarátta að mati forsætisráðherra Dregur saman með efstu frambjóðendum Mesta kvika frá því að kvikugangurinn myndaðist Nota sykursýkislyf til að léttast og Rottweilerhundar bjóða í partý Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Sendiherra, sveitarstjóri og bæjarstjóri skipuð í nefnd Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Stuðningslán með ríkisábyrgð fyrir grindvísk fyrirtæki Skipið leggur úr höfn „Alls ekki svo að við tútturnar séum að taka yfir“ Framkvæmdir hafnar við brú yfir Fjarðarhornsá Segist kallaður „stríðsæsingarmaður“ vegna fyrirhyggju Sjúklingum Landspítala fjölgaði um 4.500 milli ára Sjá meira
Deilur innan Skátanna: Skátahöfðingi stígur til hliðar Vonast til þess að sátt skapist um forystu skátastarfs á landinu. 14. janúar 2017 21:03