Greiða tugi milljóna vegna uppsagna Jón Hákon Halldórsson skrifar 9. mars 2017 07:00 Fiskistofa er með tvær hæðir á leigu í Dalshrauni í Hafnarfirði. Önnur þeirra stendur auð og á meðan ekki tekst að framleigja hana er kostnaður 2 milljónir á mánuði. vísir/valli
Fiskistofa greiðir tugi milljóna í biðlaun vegna samninga sem voru gerðir við starfsmenn þegar þeir létu af störfum við flutning stofnunarinnar frá Hafnarfirði til Akureyrar í ársbyrjun 2016. Tveir starfsmenn, sem Fréttablaðið ræddi við og voru báðir millistjórnendur hjá stofnuninni, fá hvor um sig greidd laun í heilt ár vegna starfslokanna. Þeir áætla að kostnaður stofnunarinnar vegna launa og launatengdra gjalda sé samtals um 25 milljónir króna. „Við erum ekki búin að taka saman alla kostnaðarliði en í þessu róti í kringum þetta þá var náttúrlega fólk sem sá fram á að það væri að missa vinnuna og það voru fundnar leiðir til að lenda því mjúklega. Hvort sem það heitir starfslokasamningar eða annað þá var reynt að gera það á mannlegan hátt,“ segir Eyþór Björnsson fiskistofustjóri.Eyþór Björnsson FiskistofustjóriEyþór segir að ellefu manns hafi látið af störfum beinlínis vegna flutninga stofnunarinnar. Hann segir að ekki hafi allir fengið greiðslur vegna starfsloka og þeir sem fengu greiðslur hafi fengið misjafnlega mikið. Það hafi farið eftir starfslokarétti. Í skýrslu Ríkisendurskoðunar frá því í júní síðastliðnum um flutning ríkisstarfsemi milli landshluta segir að Ríkisendurskoðun telji ekki tímabært að meta framkvæmd, ávinning og árangur af flutningi höfuðstöðva Fiskistofu til Akureyrar. Áhrif flutningsins séu ekki enn að fullu komin í ljós. „Samkvæmt mati fiskistofustjóra verður mögulegt að meta áhrif flutninganna á seinni hluta árs 2017 eða fyrri hluta árs 2018 þó að þeim verði ekki að fullu lokið. Áhrif fyrstu skrefanna eru þó að einhverju leyti komin fram og tilefni er til að skoða nánar aðdraganda og undirbúning flutninganna,“ segir í skýrslunni. Þar kemur líka fram að í fjárlögum ársins 2015 voru 130 milljónir króna veittar til flutningsins. Eyþór segist ekki geta sagt til um hvort kostnaðurinn verði umfram það. Verið sé að hefja vinnu við að taka saman kostnaðinn sem til fellur. Skýrslan verði síðar kynnt, meðal annars sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Úkraína fái tryggingar sem jafngilda 5. greininni Erlent Þau eru tilnefnd sem maður ársins Innlent Hafi hnakkrifist í teiti hjá Conan stuttu fyrir morðið Erlent Óvíst hvort Guðmundur Ingi snúi aftur í ráðuneytið Innlent Rannsaka hvort feðgarnir fengu herþjálfun á Filippseyjum Erlent Meðalbílaleigubíllinn verði fyrir mestum áhrifum Innlent Fjölgun landsmanna það eina sem hafi komið í veg fyrir tekjufall Rúv Innlent Ekki lengur hægt að breiða yfir sannleikann Innlent Skýrslan ekki til neins ef ekki verði brugðist við Innlent Umferðarslys á Breiðholtsbraut Innlent Fleiri fréttir Meðalbílaleigubíllinn verði fyrir mestum áhrifum Óvíst hvort Guðmundur Ingi snúi aftur í ráðuneytið Fjölgun landsmanna það eina sem hafi komið í veg fyrir tekjufall Rúv Umferðarslys á Breiðholtsbraut Orð gegn orði um samskipti innan almannavarnarnefndar Skýrslan ekki til neins ef ekki verði brugðist við Faðir sem missti þrjú börn í Súðavík tjáir sig um uppgjör rannsóknarnefndar Bíll bilaði og Hvalfjarðargöngum lokað um stund Kanna áhuga á mögulegu framboði Guðlaugs í borginni Vistunin sé kerfisbundið brot á mannréttindum Hvorki álit né vangaveltur um ábyrgð einstaklinga í skýrslunni Þau eru tilnefnd sem maður ársins Lögðu hald á sautján skotvopn og skotfæri um helgina Stór mál standa enn út af Í takt við það sem verið hefur Aðalsteinn gefur kost á sér í oddvitasæti og fer í leyfi Bein útsending: Kynna skýrslu um snjóflóðið í Súðavík Þurftu að lenda í Liverpool á leið til Manchester Súðavíkurskýrslan afhent forseta Alþingis Ekki lengur hægt að breiða yfir sannleikann Heyrði skothvellina á Bondi strönd Vinstri beygjan bönnuð Sinntu fimmtán málum í tengslum við Iceguys tónleikana „Ég var kölluð „hryðjuverkamaður““ Magnea sækist eftir 2.-4. sæti á lista Samfylkingar Komu sér fyrir í ruslageymslu og kveiktu þar eld Vinna að því að koma upp efnagreiningu í neyslurýmum Ekki mótfallin Fljótagöngum en ekki með nýrri forgangsröðun Fleiri lífeyrisþegar og leikskólaforeldrar sem þurfa jólaaðstoð „Mjög erfitt starf tilfinningalega“ Sjá meira