Starfsmaður Herjólfs með sýnilega áverka eftir barsmíðar farþega Erna Agnes Sigurgeirsdóttir skrifar 3. júlí 2017 12:23 Starfsmanninum hefur verið boðin áfallahjálp. Vísir/Magnús Hlynur „
Hann var rammur í afli og í ástandi sem við viljum ekki vera að mæta fólki í,“segir Gunnlaugur Grettisson, rekstrarstjóri Herjólfs, um atvik sem átti sér stað í Herjólfi síðastliðinn föstudag þegar farþegi réðst á starfsmann skipsins. Mbl greindi fyrst frá málinu.Handalögmál í landgangi Farþeginn veittist að einum stýrimanni Herjólfs með þeim afleiðingum að starfsmaðurinn slasaðist og áverkar eru sýnilegir. Gunnlaugur segir alla vera afar slegna yfir þessu atviki. Hann segir farþegann, sem um ræðir, hafa verið ansi dónalegan við fólkið í afgreiðslunni stuttu áður en hann fór um borð í bátinn. Honum hafi síðan orðið sundurorða við stýrimanninn þegar báturinn kom í Landeyjahöfn og réðst á hann í landganginum með miklum látum að sögn Gunnlaugs. „Blessunarlega voru þarna einstaklingar, bæði úr áhöfn og aðrir farþegar, sem brugðust við og sáu að þarna var maður sem var auðvitað engan veginn í jafnvægi og komu mínum góða starfsmanni til aðstoðar,“ segir Gunnlaugur í samtali við Vísi. Gunnlaugur Grettisson segir málið litið alvarlegum augum og að eitt tilvik sem þetta sé of mikið.vísir/óskar p. friðrikssonMálið í rannsókn Sveinn Kristján Rúnarsson, yfirlögregluþjónn á Suðurlandi, segir að farþeginn sé andlega veikur og hafi í kjölfar handtökunnar verið fluttur á sjúkrahús. Ekki sé vitað til þess að hann hafi verið undir áhrifum fíkniefna. Maðurinn er hálfur Íslendingur að sögn lögreglu og nefnir Sveinn að þeir hafi vitað af honum síðan hann kom til landsins. Afar sjaldgæft Gunnlaugur segir atvik sem þetta einstakt og hann man ekki eftir öðru eins. Fólk eigi þó til að vera dónalegt við starfsmenn en barsmíðar sem þessar séu sem betur fer afar sjaldgæfar. Hann nefnir að starfsmenn séu þjálfaðir í að takast á við erfið tilfelli sem geti komið upp. „Þeir hafa fengið kennslu í fangbrögðum eins og lögreglan notar, en það er reyndar svolítið síðan síðast. Auðvitað erum við í þannig starfi að við erum fyrst og fremst í ferðaþjónustu og erum að afgreiða rúmlega 340 þúsund farþega sem eru í 99,9 prósent tilfella algjörlega til fyrirmyndar,“ segir Gunnlaugur.Allt tekið til skoðunar Gunnlaugur segir að eftir atvikið hafi verklagsreglur og öryggismál verið skoðuð sérstaklega og strax hafi verið hafist handa við að bæta það sem bæta mátti. Starfsmanninum hefur verið boðið upp á áfallahjálp ef hann þess óskar. Starfsmaðurinn hefur þó hafið vinnu aftur eftir atvikið.
Mest lesið „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Innlent Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin Innlent Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Innlent Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Innlent „Ef þú ætlar austur verður þú að fara Norðurleiðina“ Innlent Herinn sé reiðubúinn að tortíma Íran verði Trump ráðinn af dögum Erlent Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Innlent Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Veður Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Innlent Fleiri fréttir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara Norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Flýtir afgreiðslu um allt að mánuð „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ „Við skulum ekki láta grípa okkur með buxurnar á hælunum þetta árið“ Ungir síbrotamenn, eldur í Bryggjuhverfinu og andstæður í veðrinu „Við skírðum hana Halla Sykurvatn Tómatsósudóttir“ Eldur í Bryggjuhverfi Jarðböðin við Mývatn opin á nýjan leik „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Vegagerðin varar við vindi Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Sjá meira