Vita ekki hversu mikið slapp Svavar Hávarðsson skrifar 18. febrúar 2017 07:00 Stangveiði er byggð á ímynd hreinleika íslenskrar náttúru – regnbogasilungur ógnar þeirri ímynd. Mynd/Þröstur
Ekki er ljóst hversu mikið af regnbogasilungi hefur sloppið úr sjóeldiskví eldisfyrirtækisins Arctic Sea Farm, en fyrirtækið tilkynnti á fimmtudag að við slátrun á regnbogasilungi úr kví fyrirtækisins í Dýrafirði, kom í ljós gat við botn kvíar. Að öllu eðlilegu hefðu í kringum 200 tonn af sláturfiski átt að vera í kvínni. Í tilkynningu fyrirtækisins á fimmtudag segir að hér kunni „að vera falin meginskýringin á mögulegri slysasleppingu regnbogasilungs sem fjallað var um síðastliðið haust, þegar engin skýring fannst á því hvaðan regnbogasilungur væri upprunninn sem veiddist í ám á Vestfjörðum.“Sigurður Pétursson framkvæmdastjóri Arctic Sea FarmSigurður Pétursson, framkvæmdastjóri Arctic Sea Farm, segir í viðtali við Fréttablaðið að ekki verði ljóst hve mikið slapp fyrr en búið er að slátra öllum fiski úr kvínni. Málið sé bagalegt fyrir fyrirtækið en valdi starfsmönnum þess jafnframt töluverðum heilabrotum. Margsinnis hafi kafarar skoðað kvíar fyrirtækisins en aldrei fundið neitt sem skýrt gæti það magn regnbogasilungs sem sannarlega var á ferðinni í ám og inni á fjörðum á Vestfjörðum. Reyndar veiddist regnbogasilungur í ám í öllum landshlutum í fyrrasumar og haust – en ósannað er hvaðan hann kemur. Þó liggur fyrir að hann kemur allur frá sjóeldi því regnbogasilungur lifir ekki villtur í íslenskri náttúru. Gatið á kvínni er við botn hennar. Fiskurinn heldur sig hins vegar ofarlega í kvínni sem getur skýrt af hverju hann er ekki allur þegar sloppinn. Um 50.000 seiði voru sett í kvína sem skila áttu 200 tonnum af sláturfiski.Mynd/OrriMynd/Orri VigfússonSigurður vill koma því á framfæri að með tilkomu fjárfesta og uppbyggingu í greininni sé endurnýjun í búnaði í anda nýrra reglna, en kvíin sem hér um ræðir er úrelt samkvæmt þeim. Sigurður segir að þessar eldri kvíar verði ekki notaðar framvegis eftir að slátrun lýkur úr þeim og segir aðspurður að menn hafi talið óhætt að bíða með endurnýjun þangað til slátrað hefði verið úr þeim – en tvö ár eru liðin síðan seiði voru sett út. Landssamband veiðifélaga (LV) hefur gagnrýnt sjókvíaeldi harðlega misserum saman og ekki síst varað við slysasleppingum á laxi vegna þeirrar hættu sem stafar að íslenska laxastofninum vegna erfðamengunar. Slík hætta er ekki fyrir hendi vegna regnbogasilungs, en slysasleppingar hans taldar sýna veikleika alls sjókvíaeldis. Félagið hefur kært slysasleppingar á regnbogasilungi til lögreglu. Landssambandið telur atvikið nú svo alvarlegt að það hljóti að leiða til sviptingar rekstrarleyfis Arctic Sea Farm. Matvælastofnun, eftirlitsaðili fiskeldis, hefur ekki slegið því föstu að málið tengist þeim regnbogasilungi sem veiddist í fyrra. Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Slagsmál brutust út eftir árekstur Innlent Þessi fjórtán voru sæmd fálkaorðunni Innlent Ráðleggur Miðflokksmönnum að breyta um tón Innlent Rændu sjónvarpi og flúðu á brott Innlent Eins árs gamalt barn skotið til bana af lögreglumanni Erlent Elín Hall er fjallkonan í ár Innlent Biðja allar stofnanir bæjarins um að flagga í allt sumar Innlent Rex Heuermann fær lífstíðardóm Erlent Spá allt að fjörutíu stiga hita Erlent Mette-Marit krónprinsessa fékk ný lungu í vel heppnaðri aðgerð Erlent Fleiri fréttir Myndaveisla: Þjóðhátíðardagur Íslendinga haldinn hátíðlegur Slagsmál brutust út eftir árekstur Rubio óskar Íslendingum til hamingju með daginn Þessi fjórtán voru sæmd fálkaorðunni Kölluð á vettvang vegna rifrildis þar sem annar tók upp hníf Sex þúsund símar nái mögulega ekki sambandi við Neyðarlínu Biðja allar stofnanir bæjarins um að flagga í allt sumar Ræða Höllu: Styrkleikar Íslendinga, samtakamáttur og skoðanaskipti Elín Hall er fjallkonan í ár Rændu sjónvarpi og flúðu á brott Sérsveitin kölluð til í nótt vegna vopnaburðar á hóteli í miðborginni Malbika í gegnum hólana í Vatnsdal Ráðleggur Miðflokksmönnum að breyta um tón Mælti sér mót við 12 ára stúlku á Snapchat Kennarar óttast framkvæmd símafrís Starfsemi hætt í Kristnesi vegna myglu Brottfararstöð eigi enga samleið með flugvallarrekstri Ekki óvenjulegt að konan gangi laus þrátt fyrir hrottalegar lýsingar Á ekki von á fleiri aflýsingum vegna mönnunar Bogi Nils í beinni, óvenjulegt sakamál, og Tiktok-ömmur Á sjúkrahús eftir að hafa kastast úr golfbíl Snúa bökum saman í sameiginlegri yfirlýsingu Þrír fluttir eftir alvarlegt umferðarslys í Reykholti Grét af vonbrigðum yfir því að hafa ekki stungið sig í hjartað Nei-kvæðir ungliðar sameinast gegn ESB Foreldrar Sólons óska eftir skýrslutökum yfir núverandi og fyrrverandi starfsmönnum Icelandair Skoða hvaða bílastæði megi aftur taka í notkun „Hún glímir ekki við geðræna erfiðleika“ Vonast til að brottfararstöðin verði á Keflavíkurflugvelli Réttarhöld yfir Ming Ting halda áfram Sjá meira