Guðni: Ég er maður breytinga
Sem kunnugt er var Guðni kjörinn formaður KSÍ á ársþingi Knattspyrnusambandsins í Vestmannaeyjum á laugardaginn. Hann mætti í fyrsta sinn til vinnu sem formaður KSÍ í morgun.
„Maður finnur það á fyrsta degi, þegar maður lítur yfir verkefnaskránna og það sem liggur fyrir, að þetta er virkilega erilsamt og mikið um að vera,“ sagði Guðni.
„Ég tel að ég sé maður breytinga þótt allir séu ekki á þeirri skoðun. Ég taldi vera kominn tími á og svo steig Geir [Þorsteinsson] til hliðar og tók stórmannlega ákvörðun eftir það farsæla starf sem hann hefur unnið hér.
„Með nýju fólki koma alltaf nýjar áherslur og breytingar. Ég á von á að kynna mér þetta allt saman vel og koma svo með mínar áherslur sem ég hef kynnt. Ég á von á mjög farsælu starfi með frábæru starfsfólki.“
Guðni segir að erlendu samskiptin séu gríðarlega stór þáttur í starfi formanns KSÍ?
„Það eru þessi erlendu samskipti sem maður upplifir strax að eru mjög mikilvæg í þessu tekjumódeli sem KSÍ býr við. Það eru tekjur sem koma erlendis frá og alls konar hagsmunir sem þarf að gæta að á erlendum vettvangi. Þar fyrir utan erum við með aðildarfélögin og allt starfið innanlands. Maður á eftir að fara vítt og breitt um landið og heimsækja öll aðildarfélögin, eða sem allra flest,“ sagði Guðni.
Eitt af því sem Guðni setti á oddinn í kosningabaráttunni var búa til stöðu yfirmanns knattspyrnumála hjá KSÍ. En er það starf ekki þegar til; starf fræðslustjóra sem Arnar Bill Gunnarsson gegnir? Þarf að láta hann til hliðar og búa til nýja stöðu?
„Nei, það fer eftir því hvernig þú lítur á þetta. Ég sé hans stöðu, ekki eins og er, verandi akkúrat það. Ég held það séu deildar meiningar um það. Það er eitthvað sem við munum bara fara yfir og stjórnin að sjálfsögðu. Ég er með vissar áherslur hvað þetta varðar og við eigum eftir að fara yfir það í rólegheitunum,“ sagði Guðni.
Tengdar fréttir

Geir heiðraður af ÍSÍ og UEFA
Geir Þorsteinsson, fráfarandi formaður KSÍ, var í dag sæmdur gullmerki ÍSÍ á 71. ársþingi KSÍ sem nú stendur yfir í Vestmannaeyjum.

Kjaranefnd mun ekki ákveða laun formanns KSÍ
Tillaga sem lá fyrir ársþingi KSÍ um að kjaranefnd myndi ákvarða laun foramnns KSÍ hefur verið felld.

Guðni: Enn meiri pólitík en maður átti von á
Nýkjörinn formaður KSÍ segist þakklátur og fullur auðmýktar.

Geir kjörinn heiðursformaður KSÍ með lófataki
Þrír eru nú heiðursformenn Knattspyrnusambands Íslands og allir eru fyrrverandi formenn sambandsins.

Óútskýrðar milljónir í launagreiðslum til formanns KSÍ
Geir Þorsteinsson lætur af störfum sem formaður KSÍ á morgun. Óvíst er hvað nýr formaður fær í laun.

Þvertekur fyrir að skyndileg breyting ÍH á þingfulltrúa hafi með atkvæðaveiðar að gera
Upphaflegi fulltrúi ÍH fór í fýluferð til Eyja en sæti hans tók þingfulltrú með náin tengsl við FH.

Geir segir fréttaflutning af launamálum KSÍ stórfurðulegan
Fyrrverandi formaður KS segir að umfjöllun fjölmiðla síðustu daga um íslensku knattspyrnuhreyfinguna ekki hafa gefið sanna mynd af þeirri einingu sem ríki innan hreyfingarinnar.

Jón Rúnar hlakkar til að vinna með Guðna þótt hann hafi ekki kosið hann
Jón Rúnar Halldórsson, formaður knattspyrnudeildar FH, segist hlakka til að vinna með nýkjörnum formanni KSÍ, Guðna Bergssyni.

Guðni Bergsson er nýr formaður KSÍ
Æsispennandi formannskosningu á ársþingi Knattspyrnusambands Íslands í Vestmannaeyjum er lokið.

Maggi Gylfa kjörinn í aðalstjórn KSÍ
Borghildur Sigurðardóttir, Magnús Gylfason, Guðrún Inga Sívertsen og Vignir Már Þormóðsson voru öll kosin í aðalstjórn KSÍ á 71. ársþingi Knattspyrnusambandsins í Vestmannaeyjum í dag.

Björn: Skýr hræðsluáróður hjá framboði Guðna
Björn Einarsson segist hafa búist við annarri niðurstöðu í kjöri til formanns KSÍ og segir að skýr hræðsluáróður hafi verið rekinn af framboði Guðna Bergssonar, mótframbjóðanda hans.

Skipting bónusanna vegna EM-ævintýrisins skildi eftir sig sára og svekkta landsliðsmenn
Af 1,9 milljarði króna sem KSÍ fékk vegna árangurs karlalandsliðsins fóru um 600 milljónir króna til leikmanna. Bónusgreiðslurnar eru af stærðargráðu sem aldrei áður hafa sést hér á landi en í samræmi við greiðslur annarra landsliða.

Viðar Halldórsson: Bumbuboltinn á ekki að hafa áhrif á stefnu KSÍ
Viðar Halldórsson, formaður aðalstjórnar FH, segir að þau félög í neðri deildum á Íslandi sem eru ekki með barna- og unglingastarf eigi ekki að hafa atkvæðisrétt á ársþingi KSÍ.

Svona var ársþing KSÍ
Ársþingi KSÍ í Vestmannaeyjum er lokið.

Besta leiðin til að bæta ímyndina er að vanda til verka
Guðni Bergsson var um helgina kjörinn nýr formaður Knattspyrnusambands Íslands eftir spennandi kosningabaráttu við Björn Einarsson. Guðni boðar breytingar og meira gagnsæi í rekstri KSÍ. Hann vill bæta ímynd sambandsins.

Björn: Menn höfðu ekki kjarkinn þegar á reyndi
Björn Einarsson var vonsvikinn eftir að hann tapaði formannsslagnum á móti Guðna Bergssyni á 71. ársþingi KSÍ sem fram fór í Vestmanneyjum í dag.

Heimir: Frambjóðendur hefðu getað sett sig betur inn í suma hluti
Heimir Hallgrímsson var ánægður með þá umræðu sem skapaðist í tengslum við formannskjör KSÍ í aðdraganda ársþings sambandsins.