Upp­gjörið: ÍR - Álfta­nes 88-119 | Álfta­nes keyrði yfir ÍR í seinni hálf­leik

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Dedrick Basile skilaði 22 stigum fyrir Álftanes í kvöld.
Dedrick Basile skilaði 22 stigum fyrir Álftanes í kvöld. Vísir/Diego

Álftanes vann afar öruggan 31 stigs sigur er liðið heimsótti ÍR í 2. umferð Bónus-deildar karla í körfubolta í kvöld, 88-119. Eftir nokkuð jafnan fyrri hálfleik stungu gestirnir af eftir hlé.

Í upphafi leiks mátti greina nokkurn skjálfta í liði ÍR-inga, sem töpuðu boltanum í gríð og erg á fyrstu mínútunum. Gestirnir frá Álftanesi gengu á lagið og náðu snemma upp góðu forskoti og heimamenn voru strax byrjaðir að elta.

ÍR-ingar náðu þó vopnum sínum fljótlega og komst þá meira jafnvægi á leikinn. Liðin skiptust á að skora og munurinn hélst í kringum tíu stig. Heimamenn náðu að minnka muninn niður í þrjú stig áður en karfa og víti í kaupbæti frá Hauki Helga Pálssyni sá til þess að gestirnir leiddu með sex stigum að loknum 1. leikhluta.

Sama jafnvægi var í leiknum framan af 2. leikhluta þar sem Álftnesingar náðu aftur upp tíu stiga forskoti. Mestur varð munurinn tólf stig, en þá tók við gott áhlaup heimamanna og ÍR-ingar minnkuðu muninn niður í tvö stig. Þeir náðu þó ekki að fylgja þessum góða kafla eftir og Álftnesingar skoruðu síðustu tvær körfur hálfleiksins, staðan 52-60 þegar flautað var til hálfleiks og liðin gengu til búningsherbergja.

Síðari hálfleikur fór svo af stað eins og sá fyrri. Álftnesingar stálu mikið af boltum og fengu auðveldar körfur, en ÍR-ingar áttu í stökustu vandræðum með að koma stigum á töfluna.

Stærsti munurinn á fyrri og seinni hálfleik var þó sá að ÍR-ingar náðu aldrei vopnum sínum almennilega eftir hlé. Álftnesingar skoruðu fyrstu 17 stigin eftir hlé ogvoru svo gott sem búnir að rota heimamenn.

Munurinn á liðunum varð fljótt 20 stig og endurkoma ÍR-inga virtist aldrei í kortunum. Gestirnir leiddu með 22 stigum að loknum 3. leikhluta og gengu svo endanlega frá leiknum í þeim fjórða og Álftanes vann að lokum 31 stigs sigur, 88-119.

Álftanes hefur því unnið fyrstu tvo leiki sína á tímabilinu, báða með yfir 30 stiga mun, og tróna á toppi deildarinnar. ÍR-ingar unnu góðan sigur gegn Sindra í fyrstu umferð, en þurfa að rétta skútuna fyrir næsta leik, sem er gegn Hetti á útivelli.

Atvik leiksins

Upphafsmínútur seinni hálfleiks voru algjör sýning af hálfu Álftnesinga. Liðið byrjaði 3. leikhluta á 17-0 kafla og fór langleiðina með að gera út um hlutina snemma í seinni hálfleik.

Stjörnur og skúrkar

Dedrick Basile og Jordan Semple voru stigahæstu menn gestanna í kvöld með 22 stig hvor. Semple bætti einnig við tíu fráköstum og sex stoðsendingum.

Í liði ÍR var Montez Mathis atkvæðamestur með 23 stig, en óhætt er að gera ráð fyrir að flestir í ÍR-liðinu vita að þeir geta betur.

Dómararnir

Sigmundur Már Herbertsson, Jakob Árni Ísleifsson og Sófus Máni Bender skiluðu sínu vel í kvöld. Menn ætluðu að fara að keyra aðeins upp hitann seint í leiknum, en þeir félagar voru fljótir að stíga inn í og ná tökum á hlutunum.

Stemning og umgjörð

Stemningin var eðlilega meiri gestamegin í kvöld. ÍR-ingar láta þó alltaf vel í sér heyra í stúkunni, en eftir því sem leið á leikinn færðist gamanið alltaf meira og meira yfir til Álftnesinga.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira