Lætur Ingu Sæland heyra það: „Óboðlegt og frekar hrokafullt“ Aron Guðmundsson skrifar 15. október 2026 08:31 Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra og formaður Flokks fólksins. Vísir/Viktor Freyr Einn af atvinnumönnum okkar Íslendinga í hnefaleikum er allt annað en sáttur með afstöðu Ingu Sæland, mennta- og barnamálaráðherra er snýr að atvinnumannahnefaleikum hér á landi.
Líkt og greint var frá á Vísi í gær er Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, á þeirri skoðun að atvinnumannahnefaleikar eigi áfram að vera bannaðir samkvæmt lögum hér á landi. Ætlar hún ekki að beita sér fyrir lagabreytingum og vísar í svari sínu, við fyrirspurn á þingi, til samantektarrannsókna sem benda til meiri meiðslatíðni í atvinnumannahnefaleikum en í áhugamannahnefaleikum og öðrum bardagaíþróttum. Algjörlega óboðlegt Þessi afstaða ráðherra fer illa í Emin Kadri, einn af atvinnumönnum okkar Íslendinga í hnefaleikum. Emin Kadri er ósigraður á sínum atvinnumannaferli og tjáði sig um málið í myndbandi á Instagram. View this post on Instagram A post shared by Emin kadri (@emin__kadri) „Mér finnst algjörlega óboðlegt og jafnvel frekar hrokafullt að hæstvirtur ráðherra okkar Íslendinga telji sig vita betur um hvers konar lög ætti að setja, um hvað fólk má og má ekki gera, heldur en allur heimurinn. Jafnvel hvert einasta Norðurland í okkar nágrenni, sem er löngu búið að leyfa þetta.“ Emin bendir á mál sem ratað hafa í fjölmiðla tengd afsögn Guðmundar Inga Kristinssonar sem ráðherra og segir Ingu ekki færa til að gæta að heilsu almennings. „Ef ég vissi ekki betur myndi ég nú segja við hæstvirtan ráðherra að hún þyrfti nú aðeins að stíga í sinn eigin skítapott og hræra aðeins í honum en ég hyggst ekki leggja mig á sama lága plan og hún. Ég er orðinn alveg dauðþreyttur á þessu. Að þurfa endalaust að berjast fyrir hlutum sem eru bara sjálfsagðir (e. basic) og eru það út um allan heim en einhvern veginn ekki á Íslandi. Hvenær ætla einhverjar raunverulegar breytingar að eiga sér stað? Af því ég er nánast alveg búinn á því.“ Áhugamannahnefaleikar hafa verið heimilir hér á landi frá 2002 samkvæmt reglum Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands. Bannið við atvinnumannahnefaleikum stendur hins vegar enn.
Box Alþingi Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti „Allur heimurinn veit hvað þessir leikmenn gera“ Handbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn „Við eigum bara svalasta fyrirliða í Evrópu“ Fótbolti Arnar kynnti landsliðshópinn Fótbolti Hópurinn í lokaleikjunum: Kristian snýr aftur og Daníel er með Fótbolti „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti „Ég er ekki Mohamed Salah“ Enski boltinn Fleiri fréttir Hópurinn sem gæti komið Íslandi á EM Dreymir um að sjá framherjapar Íslands í ensku úrvalsdeildinni „Ef menn geta ekki hagað sér núna þá er eitthvað mikið að“ „Við eigum bara svalasta fyrirliða í Evrópu“ Guðmundsdætur verða áfram í KR Hópurinn í lokaleikjunum: Kristian snýr aftur og Daníel er með Arnar kynnti landsliðshópinn Geta unnið tíunda leikinn í röð í undankeppni EM „Allur heimurinn veit hvað þessir leikmenn gera“ Rahm myndi sætta sig við sömu refsingar og Koepka fékk „Ég er ekki Mohamed Salah“ Parker nýr þjálfari West Ham Þorláki sagt upp í Sádi-Arabíu Bjóða upp á barna FanZone fyrir leikinn í Höllinni í kvöld Jake Paul lofar að hætta í hnefaleikum ef hann tapar fyrir Doumbe FH fær miðvörð aftur heim Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ „Hélt stuðningsmönnum Englanna í sjöunda himni allt árið“ Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið „Ef ég mætti ráða þá væri þetta öðruvísi“ Kemur Íslendingnum unga til varnar „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Dagskráin í dag: Meistaradeildarveisla í allt kvöld Styrktaraðili HM sniðgengur mótið eftir að Rússum var hleypt inn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Áfram skorar Andri Lucas PSG setti nýtt met í kvöld Börsungar léku sér að Aston Villa Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Sjá meira