Bílstjóri Ferðaþjónustu fatlaðra sýknaður Stefán Ó. Jónsson skrifar 15. júní 2017 16:46 Vísir/GVA
Hæstiréttur hefur snúið dómi Héraðsdóms Reykjaness í máli manns sem var dæmdur fyrir kynferðisbrot gegn konu sem hann ók fyrir Ferðaþjónustu fatlaðra. Var honum gefið að sök að að hafa í byrjun árs 2013 í fjögur skipti haft samræði og önnur kynferðismök við konuna sem og að káfa innanklæða á brjóstum hennar og kynfærum í bifreið á vegum ferðaþjónustunnar. Þannig hafi hann notfært sér að hún gat ekki spornað við verknaðinum sökum andlegrar fötlunar. Í héraðsdómi var maðurinn sýknaður af þeim hluta ákærunnar sem laut að sakargiftum um samræði og önnur kynferðismök, en sakfelldur fyrir kynferðislega áreitni í eitt skipti þann 14. mars 2013. Fræðast má frekar um niðurstöðu héraðsdóms hér. Fyrir Hæstarétti undi konan héraðsdómi að því leyti sem sýknað var en krafðist þess að refsing karlsins yrði að öðru leyti þyngd. Hæstiréttur komst að þeirri niðurstöðu, að virtum gögnum málsins, að sá akstur sem maðurinn átti að sinna sem síðasta verkefni umrædds dags renndi engum stoðum undir það að hann hefði skilað konunni seinna á áfangastað en eðlilegt mætti telja miðað við þá umferð sem gera mætti ráð fyrir á umræddum tíma dags. Þá hefði akstursleið mannsins verið eðlileg með hliðsjón af fyrirliggjandi verkefnum. Loks var vísað til þess að við flutning málsins í Hæstarétti hefði konan lýst því yfir að ekki væri víst að maðurinn hefði ekið henni 14. mars en atvik hefðu allt að einu getað gerst á öðrum degi. „Að þessu gættu og með skírskotun til þess að þrjú ár hefðu liðið frá því að ætluð brot voru framin og þar til aðalmeðferð málsins fór fram í héraði, sem gerði það að verkum að framburður konunnar og vitna fyrir dómi var rýr um atvik máls, var ekki talin komin fram nægileg sönnun um að maðurinn hefði gerst sekur um þá háttsemi sem hann hafði verið sakfelldur fyrir í héraðsdómi, sbr. 109. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Var hann því einnig sýknaður af sakargiftum sem lutu að broti á 199. gr. almennra hegningarlaga,“ segir í dómi Hæstaréttar.
Tengdar fréttir Bílstjóri dæmdur fyrir kynferðisbrot í starfi fyrir ferðaþjónustu fatlaðra Var hins vegar sýknaður af ákæru um nauðgun. 2. maí 2016 16:11 Mest lesið „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin Innlent Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Innlent „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ Innlent Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Innlent Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Innlent Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Innlent Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Innlent Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Innlent Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Innlent Fleiri fréttir Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Gagnrýna könnun sem sýni fram á stuðning við dánaraðstoð Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Flýtir afgreiðslu um allt að mánuð Sjá meira
Bílstjóri dæmdur fyrir kynferðisbrot í starfi fyrir ferðaþjónustu fatlaðra Var hins vegar sýknaður af ákæru um nauðgun. 2. maí 2016 16:11