Bílstjóri dæmdur fyrir kynferðisbrot í starfi fyrir ferðaþjónustu fatlaðra Birgir Olgeirsson skrifar 2. maí 2016 16:11 Maðurinn var dæmdur fyrir kynferðisbrot en sýknaður af ákæru um nauðgun. Vísir/Valli
Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt bílstjóra hjá ferðaþjónustu fyrir fatlaða fyrir kynferðisbrot gegn fatlaðri konu. Dómurinn sýknaði hins vegar manninn af ákæru um að hafa nauðgað konunni. Konan gaf fyrst skýrslu um málið á lögreglustöð í mars árið 2013 en þar sagði hún fram manni, sem starfaði við að aka bifreið fyrir ferðaþjónunstuna, sem hefði káfað á brjóstum hennar og kynfærum innan klæða. Sagði hún manninn hafa í framhaldi af því klætt sig og hana úr fötunum, byrjað að fróa sér en jafnframt haft við hana samræði, að því er fram kemur í dómi Héraðsdóms Reykjaness. Maðurinn neitaði sök og neitaði að hafa notað orðið gullmoli um konuna eða að hafa beðið hana um að mæta í flegnum bol. Móðir konunnar sagði manninn hafa sagði manninn hafa notað orðið gullmoli um dóttur sína og þá sögðust tvö önnur vitni hafa heyrt hann segja það. Konan sagði manninn hafa beðið sig um að mæta í flegnum fötum og staðfestu vitni þá frásögn konunnar. Maðurinn neitaði en gegn framburði fjölda vitna var hann ekki talinn trúverðugur. Dómurinn taldi konuna hafa verið trúverðuga og staðfasta þegar kom að frásögn hennar um hvernig maðurinn káfaði á henni. Þá styrkti framburður vitna frásögn hennar og var maðurinn því sakfelldur fyrir kynferðisbrot gegn henni. Dóminum þótti hins vegar vera uppi sá vafi í málinu að ekki sé hafið yfir skynsamlegan vafa að maðurinn hafa gerst sekur að hafa nauðgað konunni. Var konan talin margsaga varðandi það atriði og taldi kvensjúkdómalæknir að ólíklegt væri að getnaðarlimur hefði verið settur í fæðingarvef konunnar. Maðurinn var dæmdur til sex mánaða fangelsisvistar en fresta skal fullnustu refsingar að liðnum þremur árum haldi hann skilorði. Var maðurinn dæmdur til að greiða konunni sex hundruð þúsund krónur í miskabætur og hluta sakarkostnaðar.
Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Erlent Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Innlent Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Veður Fleiri fréttir Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Sjá meira