Segir að ríkið þurfi annað hvort að einkavæða allt eða ekkert Höskuldur Kári Schram skrifar 23. maí 2017 18:45
Forstjóri ISAVIA segir óráðlegt að einkavæða einungis hluta af rekstri Keflavíkurflugvallar eins og hugmyndir eru nú uppi um að gera. Hann segir betra að stíga skrefið til fulls eða sleppa þessu með öllu. Meirihluti fjárlaganefndar Alþingis vill skoða hvort rétt sé að selja flugstöðina í Keflavík að hluta og nota peningana í endurbætur á vegakerfinu. Þetta kemur fram áliti meirihlutans á fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar. Haraldur Benediktsson formaður fjárlaganefndar sagði í þættinum Víglínan á Stöð 2 á laugardag að ekki stæði til að einkavæða allan reksturinn í Keflavík. „Það sem við erum að horfa á er verslunarmiðstöðin sem er í flugstöðunni. Við erum bara að horfa á þetta verslunarhúsnæði sem ríkið hefur þarna ákveðið að reka. Getum við talað um að taka þá fjármuni sem þarna eru bundnir og breyta þeim í vegi og hafnir?“ sagði Haraldur. Björn Óli Hauksson forstjóri ISAVIA segir vel hægt að skoða aðkomu einkaðila að rekstrinum í Keflavík en þá þurfi að liggja fyrir skýrar línur frá ríkinu. "Ef við horfum til útlanda þá getum við séð að Kaupmannahafnarflugvöllur er t.d. einkavæddur og í eigu kanadískra aðila. Það eru sumir sem setja svona flugvelli á markað og selja hlutabréf í honum. Þetta er svona dæmi um það sem menn hafa verið að gera. Ég ætla ekki að taka afstöðu til þess hvernig eigandi ætlar að stjórnar því,“ segir Björn. Hann segir menn þurfi þá að vera tilbúnir að fara alla leið í einkavæðingu. „Ég myndi hafa áhyggjur af því ef við myndum einkavæða búta úr starfseminni. Annað hvort þurfa menn að stíga skrefið til fulls eða ekki,“ segir Björn. „Það væri sérstakt ef við færum að selja einhverja bita af flugstöðinni sem eru nauðsynlegir fyrir rekstur hennar,“ segir Björn.
Mest lesið Lýsa uppgötvuninni sem gríðarstórum „hvalakirkjugarði“ Erlent Ætlar ekki að sitja undir ásökunum um barnaníð Innlent Ming Ting mætt í dómsal vegna Edition-málsins Innlent Vísað út úr flugvél: „Þetta er bara ömurlegt“ Innlent Íranir draga orð Trump til baka og vara fólk við að taka hann trúanlegan Erlent Meirihluti bíður eftir greiningu í meira en ár Innlent Logi sker hlaðvarpara úr snöru Fjölmiðlanefndar Innlent Sjálftakan „til háborinnar skammar“ Innlent 107 fæddu heima og sjö án aðkomu heilbrigðisstarfsfólks Innlent Sakfellingu fyrir að nauðga sofandi kærustu snúið við í Landsrétti Innlent Fleiri fréttir Borgin afþakkar risaeðlubein Segja brottfararstöð ekki samrýmast Barnasáttmálanum Frostbitnir Frónbúar kætast í dag Segir Icelandair krefjast meiri vinnu fyrir lægri laun Logi sker hlaðvarpara úr snöru Fjölmiðlanefndar Búið að semja um þinglok Sakfellingu fyrir að nauðga sofandi kærustu snúið við í Landsrétti Ming Ting mætt í dómsal vegna Edition-málsins Róbert leiðir vinnu hagræðingarhóps nýs meirihluta Meirihluti bíður eftir greiningu í meira en ár Malbika á Reykjanesbraut í kvöld 107 fæddu heima og sjö án aðkomu heilbrigðisstarfsfólks Ætlar ekki að sitja undir ásökunum um barnaníð Eldar í grillum og kveikt í ruslagámi Fara fram á að fjármálaáætlunin sé endurreiknuð Eldur í Árbænum Vill ekki ganga svo langt að kalla þetta klofning innan flokksins Sjálftakan „til háborinnar skammar“ Eldfim staða, sorglegt áhugaleysi og ráðgáta Vísað út úr flugvél: „Þetta er bara ömurlegt“ Hafnar kreddum um verðbólguna Stefnir í uppbótartíma Starfsáætlun Alþingis kippt úr sambandi Tóku þátt í að uppræta rafmyntaþvætti sem teygði anga til Íslands Hótaði að beita skotvopni Finnur ekki fyrir sársauka Árásarmaður Tinnu fær ekki áheyrn: Taldi brotið á mannréttindum minnihlutahópa MDE vísar frá tveimur málum gegn Íslandi Flekahreyfingar innan Samfylkingar Rýmdu skrifstofur Hagkaupa vegna hótunar Sjá meira