Hrollvekjur og dróni í grunnskólakeppni Sunna Sæmundsóttir skrifar 24. maí 2017 20:00
Stuttmyndahátíð grunnskólabarna í Reykjavík fór fram í dag en yfir níutíu myndir bárust í fjórum flokkum. Bestu verkin voru verðlaunuð í Bíó Paradís í dag. Viðfangsefnin voru fjölbreytt í þessari elstu kvikmyndahátíð landsins sem haldin var í 29. skipti. Keppt var í yngri og eldri flokkum með stuttmyndir, heimildarmyndir og tónlistarmyndbönd. Erla Stefánsdóttir sem hefur haldið utan um keppnina í átta ár segir framlögin verða sífellt betri samhliða tækniframförum. „Þetta er mjög fjölbreytt í ár. Það hefur oft verið mikið um eineltisefni. En í ár var þetta léttara og meira um hryllingsmyndir," segir Erla létt í bragði. Fjórir strákar úr tíunda og áttunda bekk Rimaskóla stóðu saman að gerð hryllingsmyndar sem er þó ekki gerð til að hræða úr fólki líftóruna. „Þetta er hrollvekja og fjallar um mann sem fer inn á klósett og festist þar inni. Þá byrjar sturluð atburðarrás sem ég vil helst ekki gefa upp," segir Alexander Þór Gunnarsson. Kristín og Urður gerðu tónlistarmyndband við frumsamið lag sem vann í eldri flokki tónlistar. Lagið á að varpa ljósi á einelti. „Þetta fjallar um að maður eigi ekki að leyfa fólki að vera leiðinlegt við sig og svo langaði okkur í myndbandinu að sýna borgina," segir Urður Þórsdóttir. Innblásturinn segir hún koma frá fólki í kringum sig. Aðrar stelpur úr fóru óhefðbundnar leiðir og vildu láta áhorfendum líða óþægilega. „Þetta á að vera svona trylli-mynd. Maður hlær og líður óþægilega en svona góð-óþægilega. Þetta er svolítið eins og The Shining," segir Katla Njálsdóttir. Fyrsta drónamyndbandið vann til verðlauna í keppninni í ár en höfundur þess segist hvergi fara án tækisins. „Ég og pabbi minn ferðumst mjög mikið um landið á breyttum bílum og höfum gaman að því að ferðast. Ég tek alltaf drónann með," segir Arnþór. Aðspurður hvort hann ætli að leggja þetta fyrir sig í framtíðinni svarar hann að stefnan sé sett á kvikmyndanám.
Mest lesið Lýsa uppgötvuninni sem gríðarstórum „hvalakirkjugarði“ Erlent Ætlar ekki að sitja undir ásökunum um barnaníð Innlent Ming Ting mætt í dómsal vegna Edition-málsins Innlent Vísað út úr flugvél: „Þetta er bara ömurlegt“ Innlent Íranir draga orð Trump til baka og vara fólk við að taka hann trúanlegan Erlent Meirihluti bíður eftir greiningu í meira en ár Innlent Logi sker hlaðvarpara úr snöru Fjölmiðlanefndar Innlent Sjálftakan „til háborinnar skammar“ Innlent 107 fæddu heima og sjö án aðkomu heilbrigðisstarfsfólks Innlent Sakfellingu fyrir að nauðga sofandi kærustu snúið við í Landsrétti Innlent Fleiri fréttir Borgin afþakkar risaeðlubein Segja brottfararstöð ekki samrýmast Barnasáttmálanum Frostbitnir Frónbúar kætast í dag Segir Icelandair krefjast meiri vinnu fyrir lægri laun Logi sker hlaðvarpara úr snöru Fjölmiðlanefndar Búið að semja um þinglok Sakfellingu fyrir að nauðga sofandi kærustu snúið við í Landsrétti Ming Ting mætt í dómsal vegna Edition-málsins Róbert leiðir vinnu hagræðingarhóps nýs meirihluta Meirihluti bíður eftir greiningu í meira en ár Malbika á Reykjanesbraut í kvöld 107 fæddu heima og sjö án aðkomu heilbrigðisstarfsfólks Ætlar ekki að sitja undir ásökunum um barnaníð Eldar í grillum og kveikt í ruslagámi Fara fram á að fjármálaáætlunin sé endurreiknuð Eldur í Árbænum Vill ekki ganga svo langt að kalla þetta klofning innan flokksins Sjálftakan „til háborinnar skammar“ Eldfim staða, sorglegt áhugaleysi og ráðgáta Vísað út úr flugvél: „Þetta er bara ömurlegt“ Hafnar kreddum um verðbólguna Stefnir í uppbótartíma Starfsáætlun Alþingis kippt úr sambandi Tóku þátt í að uppræta rafmyntaþvætti sem teygði anga til Íslands Hótaði að beita skotvopni Finnur ekki fyrir sársauka Árásarmaður Tinnu fær ekki áheyrn: Taldi brotið á mannréttindum minnihlutahópa MDE vísar frá tveimur málum gegn Íslandi Flekahreyfingar innan Samfylkingar Rýmdu skrifstofur Hagkaupa vegna hótunar Sjá meira