Geta ekki tekið þátt í Sjómannadeginum vegna verkfalls Jóhann K. Jóhannsson skrifar 27. maí 2017 13:39 Fra hátíðahöldum á Sjómannadaginn Vísir/Anton
Verkfall sjómanna tók mikinn toll úr sjóðum Sjómannafélags Eyjafjarðar og segir formaðurinn að félagið geti að þeim sökum ekki komið að hátíðarhöldum á Sjómannadaginn. Sjómannafélag Eyjafjarðar hefur komið að hátíðarhöldum á Sjómannadaginn mörg undanfarin ár en mun draga sig út úr hátíðarhöldum dagsins þann 11. júní næst komandi. Konráð Alfreðsson er formaður sjómannafélags Eyjafjarðar. „Sjómannafélag Eyjafjarðar hefur aldrei staðið að hátíðarhöldum Sjómannadagsins. Við höfum hins vegar komið að þeim með styrkjum, mismiklum eftir því hvað á þarf að halda með peningaframlögum en við munum ekki gera það í ár,“ segir formaðurinn. Konráð segir að verkfall sjómanna undir lok síðasta síðasta árs sem stóð fram í febrúar á þessu ári hafi tekið mikinn toll. „Við erum nýkomnir út úr löngu og erfiðu verkfalli þar sem við borguðum félagsmönnum laun á meðan á verkfalli stóð og við eigum bara ekki pening í þetta núna og þurfum að gæta aðhalds og safna fyrir frekari átökum þegar að þeim kemur.“ Konráð segir það ekki koma á óvart ef önnur stéttarfélög sjómanna standi í sömu sporum. „Ég er alveg klár á því að stéttarfélög gera það. Stéttarfélögin eru ekki nema að litlu leyti að standa að hátíðahöldunum og sjá um þau. Það eru bæjarfélögin þar sem stærstu sjómannadagshátíðarnar eru sem standa að baki hátíðahöldunum,“ segir Konráð Alfreðsson, formaður Sjómannasambands Eyjafjarðar sem gerir ekki ráð fyrir öðru en að deginum verði fagnað í Eyjafirði í ár sem endranær. „Kannski verður það minna en hefur verið.“
Mest lesið Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Innlent Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent Gera ekki aðra atlögu Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Innlent Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi Innlent Trump hjólar í páfa Erlent Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Innlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Fleiri fréttir Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Miðflokkurinn úr leik í Árborg Krefja Ingu svara við leikskólaáformum Samfylkingarinnar „Við lítum þetta mál mjög alvarlegum augum“ Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi „Það er ekkert bjart yfir okkur akkúrat í dag“ Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Drengurinn kominn heim til sín Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Gera ekki aðra atlögu Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Sjá ekki fyrir endann á ástandinu í fangelsunum Flugstjórinn þögull sem gröfin Lækka gjöld í sveitarfélaginu og fangaverðir segja kerfið komið að þolmörkum Erfiðara að berjast við stjórnvöld en að lifa með náttúruvá „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Vonbrigði með tilmæli og bjórbann í Bláfjöllum Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Sjá meira