Torfærumót blásið af eftir slys: „Þakka fyrir að allur þessi búnaður var í notkun“ Stefán Ó. Jónsson skrifar 28. maí 2017 09:24 Frá mótinu við Stapafell í gær. Myndin tengist efni fréttarinnar óbeint. Gunnlaugur Einar Briem
Önnur umferð Íslandsmótsins í torfæru var blásin af í gær eftir að ökumaður slasaðist í fjórðu braut keppninnar. Klippa þurfti ökumanninn, sem hlaut höfuðáverka, í stól sínum úr bílnum og var hann fluttur á slysadeild. Hann hefur nú lokið öllum rannsóknum og heilsast vel, að sögn mótsstjórans Ragnars Bjarna Gröndal. „Dagurinn fór rosalega vel af stað með smá rigningardembu annað slagið sem virðist fylgja íslenskri torfæru. Við vorum búin að keyra fjórar brautir í götubílum og vorum að keyra fjórðu brautina fyrir sérútbúna þegar einn ökumaðurinn fær mikið högg á sig við lendingu í hliðarhalla. Það verður til þess að það kemur mikill slinkur á bílinn hjá honum,“ segir Ragnar. Allur öryggisbúnaður bílsins virkaði „hárrétt“ að sögn Ragnars; stóll, hjálmur og veltigrind skiluðu sínu og vörnuðu því að ekki fór verr. „Ég held að hann megi þakka fyrir að allur þessi búnaður var í notkun, annars hefði þetta farið mun verr.“ Mótið, sem fram fór í námunum sem liggja við Stapafell á Suðurnesjum, var blásið af eftir slysið – „við vissum ekkert um ástandið á keppandanum,“ segir Ragnar. „Allt starfsfólkið var í uppnámi eftir svona atvik. Maður veit ekki hvað er og allir reyna því að hjálpast að.“ Hvað framhald Íslandsmótinu varðar segir Ragnar að verðlaun verði veitt í næstu viku fyrir það sem búið var af mótinu áður en slysið varð. Ekki hefur þó enn verið tekin ákvörðun um hvort Íslandsmeistarastig verði veitt fyrir mótið – þar sem það var ekki „keyrt sem löglegt mót eftir svona uppákomu.“ Fundað verður um framhaldið hjá Akstursíþróttasambandi Íslands á næstunni. Myndband frá mótinu í gær má sjá hér að neðan.
Mest lesið Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Gera ekki aðra atlögu Innlent Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Innlent Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Trump hjólar í páfa Erlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Innlent Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Innlent Drengurinn kominn heim til sín Innlent Fleiri fréttir Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Drengurinn kominn heim til sín Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Gera ekki aðra atlögu Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Sjá ekki fyrir endann á ástandinu í fangelsunum Flugstjórinn þögull sem gröfin Lækka gjöld í sveitarfélaginu og fangaverðir segja kerfið komið að þolmörkum Erfiðara að berjast við stjórnvöld en að lifa með náttúruvá „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Vonbrigði með tilmæli og bjórbann í Bláfjöllum Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Maður hífður upp úr Ölfusá Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Ellefu framboðslistar á kjörseðli borgarbúa í vor Fjórar í valdastöðum á fréttamynd ársins Maður stunginn í heimahúsi á Akureyri Sjá meira