Bláskógabyggð vill íþróttamannvirkin Jón Hákon Halldórsson skrifar 29. maí 2017 09:00 Húsnæðið yrði áfram í eigu ríkisins MYND/UMFI
Viðræður eru hafnar milli menntamálaráðuneytisins og fjármálaráðuneytisins annars vegar og sveitarfélagsins Bláskógabyggðar hins vegar um að sveitarfélagið taki við íþróttahúsinu á Laugarvatni, íþróttamiðstöðinni, sundlauginni, og íþróttavellinum þegar Íþróttafræðasetrið að Laugarvatni hefur endanlega verið lagt niður. Háskóli Íslands hættir endanlega kennslu í íþróttafræði að Laugarvatni núna í sumar og hefur óskað eftir því að losna við fyrrgreindar eignir frá og með 1. júní. Allt frá því að ákvörðunin um að hætta kennslunni var tekin haustið 2015 hefur óvissa ríkt um framtíð mannvirkjanna. Þó hefur verið ákveðið að kennsluhúsnæðið og nokkrir starfsmannabústaðir yrðu nýttir undir rannsóknarsetur að Laugarvatni sem opnað verður í samstarfi við háskólasamfélagið á Suðurlandi. Það er hugsað sem mótvægisaðgerð þegar íþróttakennslu Háskólans verður hætt.Halldór Páll Halldórssom, skólameistari „Þetta er einn af möguleikunum sem búið er að vera að skoða, en þetta er á viðræðustigi enn þá,“ segir Valtýr Valtýsson, sveitastjóri í Bláskógabyggð. Hann segir margt að skoða í tengslum við þessar viðræður, til dæmis ástand eignanna, og enn eigi eftir að taka ákvörðun um það hvaða verð yrði greitt fyrir þær ef af yrði. „Við tókum síðustu viku í að skoða þessar eignir og átta okkur á því í hvaða stöðu þær eru. Það er ekkert hægt að fara að taka við þessum eignum án þess að vita hvað fylgir með,“ segir Valtýr. Hann bætir því við að fundur sé áformaður vegna þessa máls í næstu viku og að funda verði tvisvar til þrisvar í viðbót áður en menn átti sig á því hver niðurstaðan verður. Valtýr segist meðvitaður um það að framtíð þessara mannvirkja skipti miklu máli fyrir samfélagið að Laugarvatni. „Þetta skiptir samfélagið þarna alveg gríðarlega miklu máli. Það er ekki bara háskólinn sem hefur notað þetta. Menntaskólinn notar þetta, leikskólinn, ungmennafélagið. Þannig að þetta er búið að vera ákveðin burðarstoð inni í þessu samfélagi,“ segir Valtýr. Því sé mikilvægt að finna lausn sem allir geta sætt sig við. Stjórnendur Menntaskólans að Laugarvatni hafa þrýst á um að nýr húsráðandi íþróttahúss og sundlaugar Háskóla Íslands á Laugarvatni yrði fundinn þegar íþróttafræðasetrið væri farið. „Það er einfaldlega þannig að það verður að finnast lausn til langrar framtíðar vegna þess að Menntaskólinn og samfélagið að Laugarvatni getur ekki án íþróttahússins og sundlaugarinnar verið,“ segir Halldór Páll Halldórsson skólameistari.
Mest lesið Lýsa uppgötvuninni sem gríðarstórum „hvalakirkjugarði“ Erlent Ætlar ekki að sitja undir ásökunum um barnaníð Innlent Ming Ting mætt í dómsal vegna Edition-málsins Innlent Vísað út úr flugvél: „Þetta er bara ömurlegt“ Innlent Íranir draga orð Trump til baka og vara fólk við að taka hann trúanlegan Erlent Meirihluti bíður eftir greiningu í meira en ár Innlent Logi sker hlaðvarpara úr snöru Fjölmiðlanefndar Innlent Sjálftakan „til háborinnar skammar“ Innlent 107 fæddu heima og sjö án aðkomu heilbrigðisstarfsfólks Innlent Sakfellingu fyrir að nauðga sofandi kærustu snúið við í Landsrétti Innlent Fleiri fréttir Borgin afþakkar risaeðlubein Segja brottfararstöð ekki samrýmast Barnasáttmálanum Frostbitnir Frónbúar kætast í dag Segir Icelandair krefjast meiri vinnu fyrir lægri laun Logi sker hlaðvarpara úr snöru Fjölmiðlanefndar Búið að semja um þinglok Sakfellingu fyrir að nauðga sofandi kærustu snúið við í Landsrétti Ming Ting mætt í dómsal vegna Edition-málsins Róbert leiðir vinnu hagræðingarhóps nýs meirihluta Meirihluti bíður eftir greiningu í meira en ár Malbika á Reykjanesbraut í kvöld 107 fæddu heima og sjö án aðkomu heilbrigðisstarfsfólks Ætlar ekki að sitja undir ásökunum um barnaníð Eldar í grillum og kveikt í ruslagámi Fara fram á að fjármálaáætlunin sé endurreiknuð Eldur í Árbænum Vill ekki ganga svo langt að kalla þetta klofning innan flokksins Sjálftakan „til háborinnar skammar“ Eldfim staða, sorglegt áhugaleysi og ráðgáta Vísað út úr flugvél: „Þetta er bara ömurlegt“ Hafnar kreddum um verðbólguna Stefnir í uppbótartíma Starfsáætlun Alþingis kippt úr sambandi Tóku þátt í að uppræta rafmyntaþvætti sem teygði anga til Íslands Hótaði að beita skotvopni Finnur ekki fyrir sársauka Árásarmaður Tinnu fær ekki áheyrn: Taldi brotið á mannréttindum minnihlutahópa MDE vísar frá tveimur málum gegn Íslandi Flekahreyfingar innan Samfylkingar Rýmdu skrifstofur Hagkaupa vegna hótunar Sjá meira