Miklar skemmdir unnar á fjórðu braut golfvallarins á Seltjarnarnesi Atli Ísleifsson skrifar 6. maí 2017 11:05 Kristinn segir að svona mál koma upp af og til, að bílum sé ekið inn á völlinn. Þetta sé þó versta tilfellið í langan tíma. Kristinn Ólafsson
Miklar skemmdir voru unnar á fjórðu braut og flöt golfvallarins á Seltjarnarnesi í nótt þar sem bíl var ekið inn á völlinn og honum ekið í hringi. Kristinn Ólafsson, formaður Nesklúbbsins, segir tjónið vera mikið fyrir klúbbinn. „Það var ekið inn á völlinn, spólað í tvo, þrjá hringi. Viðkomandi keyrði einnig niður skilti, fór hér um og skemmdi. Hann segir klúbbinn vera með öryggismyndavélar á svæðinu sem verið sé að skoða með lögreglu. „Svo eru öryggismyndavélar inn og út af Seltjarnarnesi sem menn munu skoða. Bíllinn lenti í einhverju barði og því hugsanlegt að það hafi orðið eitthvað tjón á honum. Þetta verður rannsakað og við hvetjum fólk til að hafa samband ef það hefur orðið vart við einhverjar mannaferðir á svæðinu.“ Kristinn segir ekki liggja fyrir að svo stöddu klukkan hvað skemmdirnar voru unnar. „Við erum að meta tjónið með okkar vallarstarfsmönnum. Í versta falli getur þetta hlaupið á milljónum. Flatirnar eru mjög viðkvæmar, eru blautar og að jafna sig eftir veturinn. Það á eftir að koma í ljós hvað við þurfum að gera. Það er möguleiki að fyrst þurfi að ráðast í bráðabirgðaviðgerðir og svo gera eitthvað meira.“ Kristinn segir að svona mál koma upp af og til, að bílum sé ekið inn á völlinn. Þetta sé þó versta tilfellið í langan tíma.
Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Erlent Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Veður Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Fleiri fréttir Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Sjá meira