Segir brotið á réttindum vegalausra barna 8. apríl 2017 19:49 "Þetta er algjörlega óviðunandi," segir verjandi drengjanna. vísir/bjartur
Talskona Barnaheilla – Save the Childern á Íslandi segir að brotið sé á réttindum vegalausra barna sem koma hingað til lands sem hælisleitendur, þar sem úrræði vanti fyrir þau. Hún segir brýnt að yfirvöld taki á málum þessara barna af festu og alvöru. Greint var frá því á fimmtudag að tveir hælisleitendur á barnsaldri sem komu fylgdarlausir hingað til lands með Norrænu í september, dvelji einirá gistiheimili í Reykjavík. Lögmaður þeirra segir þá búa við óviðunandi aðstæður og gagnrýnir stjórnvöld fyrir að hafa lítil afskipti af þeim. Talskona Barnaheilla tekur undir þessa gagnrýni og segir að það vanti samstarf milli Barnaverndarnefndar og útlendingastofnunar og úrræði í þessari stöðu.Sjá einnig:Barnavernd hefur lítil afskipti af tveimur hælisleitendum á barnsaldri: „Þetta er algjörlega óviðunandi“ „Við hjá Barnaheillum höfum auðvitað áhyggjur af þessu og við höfum í fjölmörg ár, hátt í tíu ár, bent á að málefni vegalausra barna á Íslandi eru ekki í góðum farvegi og það er í raun og veru ekki tekið á þeirra málum eins og annarra barna,“ segir Margrét Júlía Rafnsdóttir, verkefnastjóri Barnaheilla. Fylgdarlausum börnum hefur fjölgað mikið og aldrei hafa fleiri komið hingað til lands í leit að hæli. Engin sérstök úrræði eru til staðar, en Margrét segir að í mörgum tilfellum sé brotið á réttindum þessara barna. „Já það er klárlega verið að því, það eru hér á landi börn sem eru búin að vera hérna í lengri tíma án þess að fá viðunandi úrræði og búa við aðstæður sem eru algjörlega óásættanlegar fyrir börn. EF við viljum betri heim og betra samfélag, þá gerum við það helst með því að fjárfesta í börnum, öllum börnum ekki bara sumum börnum. Við megum ekki mismuna börnum eftir stöðu þeirra, það er algjörlega klárt.“ Hún segir brýnt að ríki og sveitarfélög taki á málum barnanna. „Margir aðilar eru að reyna að gera vel en það skortir samræmi á milli kerfa og að á þessu sé tekið af meiri festu og alvöru. Þetta er alvöru mál. Ef íslenskt barn væri í þessari stöðu, við myndum aldrei láta það vera í marga mánuði án þess að koma því í einhverskonar úrræði, fósturúrræði eða annað. Aldrei.“
Tengdar fréttir Barnavernd hefur lítil afskipti af tveimur hælisleitendum á barnsaldri: "Þetta er algjörlega óviðunandi“ Tveir hælisleitendur á barnsaldri, sem komu fylgdarlausir hingað til lands í september, dvelja nú einir á hosteli í Reykjavík. Héraðsdómslögmaður segir þá búa við óviðunandi aðstæður og er gagnrýnin á stjórnvöld sem hafa haft lítil afskipti af drengjunum. Hún vill að innanríkisráðherra bregðist við. 6. apríl 2017 18:30 Mest lesið Telja Sævar hafa verið tengilið Kastriots við skipverjana Innlent Innbrot í sælkerabakarí: „Ég grét í allan gærdag en opnaði samt“ Innlent „Þeir sem taka pening frá veðmálafyrirtækjum ættu að líta í eigin barm“ Innlent Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais Innlent Byrjaði skyndilega að taka konuna hálstaki og hélt í 40 sekúndur Innlent Lokuðu flugbraut vegna dróna Innlent Hafnarfjörður hafði betur gegn Jóni Rúnari Innlent „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Innlent „Stundum koma upp atvik“ Innlent Gagnrýnin byggð á misskilningi Innlent Fleiri fréttir Dæmdur fyrir heimilisofbeldi en sagðist sjálfur hafa verið eins og gísl Telja Sævar hafa verið tengilið Kastriots við skipverjana „Stundum koma upp atvik“ Langflestir umsækjendur frá Úkraínu „Ef þú vilt græða þá ferðu í að selja loftkælingu í Evrópu“ „Þeir sem taka pening frá veðmálafyrirtækjum ættu að líta í eigin barm“ Byrjaði skyndilega að taka konuna hálstaki og hélt í 40 sekúndur Allt lið kallað út vegna elds í vélarrúmi „Það varð uppi fótur og fit“ Endurreisn mýranna megi ekki bíða lengur Olíuverð, trjáþjófnaður og áhrifagjörn ungmenni Hafnarfjörður hafði betur gegn Jóni Rúnari „Elliðaárnar eru bakkafullar af göngulaxi“ Innbrot í sælkerabakarí: „Ég grét í allan gærdag en opnaði samt“ Brotist inn í Fíladelfíuna og gítar stolið Gæti orðið hálf milljón árið 2037 Gagnrýnin byggð á misskilningi Innbrot í kirkju á höfuðborgarsvæðinu Lokuðu flugbraut vegna dróna Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Sektuðu í grennd við Símamótið „Við erum að svara kalli tímans“ Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Á fimmta tug barna vilja sækja skóla í Grindavík „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Hvalur skaut up kollinum í Hólmavík Mælirinn segir 33 gráður „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Sjá meira
Barnavernd hefur lítil afskipti af tveimur hælisleitendum á barnsaldri: "Þetta er algjörlega óviðunandi“ Tveir hælisleitendur á barnsaldri, sem komu fylgdarlausir hingað til lands í september, dvelja nú einir á hosteli í Reykjavík. Héraðsdómslögmaður segir þá búa við óviðunandi aðstæður og er gagnrýnin á stjórnvöld sem hafa haft lítil afskipti af drengjunum. Hún vill að innanríkisráðherra bregðist við. 6. apríl 2017 18:30