Endurnýta 72 þúsund fermetra af mosa Garðar Örn Úlfarsson skrifar 21. mars 2017 06:45 Hraunið við fyrirhuguð gatnamót er mosavaxið. Nota á mosann til að græða sár eftir framkvæmdina. vísir/gva „
Þetta getur kostað aðeins meira í upphafi en á móti sparar þetta áburðargjöf, eitranir og slátt þannig að til lengri tíma litið myndi ég halda að þetta væri ódýrara,“ segir Matthildur B. Stefánsdóttir hjá Vegagerðinni um þá aðferð að nýta staðbundinn gróður til uppgræðslu við vegstæði í stað grasfræja. Matthildur, sem er deildarstjóri umhverfisstjórnunar, segir Vegagerðina hafa verið í tilraunavinnu, meðal annars í samvinnu við Landbúnaðarháskólann, með að nota náttúrlegan gróður til frágangs eftir vegaframkvæmdir. Sambærileg vinna hafi farið fram hjá Landsvirkjun og Orku náttúrunnar. Aðferðinni hafi verið beitt í ýmsum framkvæmdum þar sem gerðar hafa verið sérstakar kröfur um uppgræðslu. „Núna erum við að taka þetta út úr tilraunastiginu og innleiða í verklýsingar hjá okkur og almennt verklag,“ segir Matthildur. Græða eigi vegsvæði upp þannig að þau séu í sem mestu samræmi við nærumhverfið. „Það er reynt að geyma gróður sem tekinn er upp við framkvæmdirnar og nýta við uppgræðsluna þannig að við séum þá að nota sem minnst af grasfræjum og áburði.“ Í nýafstöðnu uppboði á mislægum gatnamótum Krýsuvíkurvegar og Reykjanesbrautar skammt frá álverinu í Straumsvík er gert ráð fyrir að mosi verði fjarlægður af um 72 þúsund fermetra svæði og hann síðan nýttur í sárin. Að sögn Óskars Arnar Jónssonar, forstöðumanns framkvæmdadeildar Vegagerðarinnar, er áætlað að þessi verkþáttur kosti um 7,2 milljónir króna en verkið í heild um 900 milljónir króna. Sem fyrr segir telur Matthildur að til lengri tíma litið sé þessi aðferð ódýrari en hefðbundin sáning með grasfræjum. „Kannski má segja að þetta sé eins og með ljósaperurnar nýju; þær eru kannski dýrari í byrjun en þær endast miklu lengur og eru ódýrari þegar upp er staðið,“ útskýrir hún. Fyrirtækin Loftorka og Suðurverk munu annast verkið og verður skrifað undir samninga þess efnis í dag að sögn Óskars Arnar hjá framkvæmdadeild Vegagerðarinnar. Verklok eru áætluð í nóvember. Í þessu tilfelli verður mosinn ekki fjarlægður í heilum flögum heldur á að tæta hann og dreifa síðan. „Mosinn er jafnvel hakkaður og honum síðan dreift með svipaðri græju og mykjudreifara. Þá dreifast gróin yfir,“ segir Óskar. Í fyrirhuguðum endurbótum í Þingvallaþjóðgarði á hins vegar að geyma mosa sem heillegastan. Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Gátu ekki gefið skýr svör um mögulegt ástarsamband Innlent Uppnám í Dettifossmálinu vegna óvænts gagns Innlent „Við höfum ekki séð svona frábærar tölur í háa herrans tíð“ Innlent Fréttaþyrla NBC hrapaði í Los Angeles Erlent Sævar las upp yfirlýsingu: „Ég treysti ákæruvaldinu ekki“ Innlent Fréttir af dagsleyfi kynferðisbrotamanns slógu ráðherra illa Innlent „Ég myndi segja að ég væri burðardýr“ Innlent Húsnæði fundið undir brottfararstöð Innlent Áfram gengur að stoppa upp í ósongatið Erlent Tvö alvarleg atvik hjá dagforeldri skráð Innlent Fleiri fréttir Fimm aukaíbúðir þar sem aðeins mátti vera ein Kannast ekkert við málið og segir lögreglu hafa komið fíkniefnum fyrir Blindfullum unglingum fækkar Blendnar tilfinningar á Degi íslenskrar náttúru Margir telji húsnæði brottfararstöðvar of nærri íbúabyggð Sævar las upp yfirlýsingu: „Ég treysti ákæruvaldinu ekki“ Höfnuðu ráðgjöf um að göng undir Klettsháls yrðu í forgangi Fréttir af dagsleyfi kynferðisbrotamanns slógu ráðherra illa Blóðtaka úr hryssum telst tilraun á dýrum Þögull sem gröfin um Sævar Ók of hratt í hálku þegar banaslys varð á Fjarðarheiði Húsnæði fundið undir brottfararstöð Óvænt gagn og afleikur ríkisstjórnarinnar „Ég myndi segja að ég væri burðardýr“ Vilja færa fjögur þingsæti í Suðvesturkjördæmi Uppnám í Dettifossmálinu vegna óvænts gagns Sleppt að lokinni yfirheyrslu vegna hótelbruna Ráðin aðstoðarmaður framkvæmdastjóra Rauða krossins Aðalmeðferð hafin í Dettifossmálinu Telur ekki tímabært að leggja fram miðlunartillögu Skjálftahrina suðvestur af Eldey Tafir við gönguljós á Hringbraut ekki vegna bilunar Réðst á ökumann með slökkvitæki Ingólfur leysir Baldur af Gátu ekki gefið skýr svör um mögulegt ástarsamband Tvö alvarleg atvik hjá dagforeldri skráð „Það kom babb í bátinn í Hafnarfjarðarhöfn“ „Við höfum ekki séð svona frábærar tölur í háa herrans tíð“ Útkall lengst úti á hafi þriðja daginn í röð Laga þurfi fegurðarskynið að orkuskiptum Sjá meira