Gamla fólkið notar geðlyf í miklum mæli Sveinn Arnarsson skrifar 13. mars 2017 07:00 Landlæknisembættið segir fóki á hjúkrunarheimilum gefin lyf vegna hegðunarvandamála eða óróleika aldraðra. vísir/pjetur
Fjórða hvert gamalmenni á öldrunarheimili á Íslandi er á sterkum geðlyfjum án þess að kljást við geðsjúkdóm. Vistmönnum eru gefin geðlyf vegna óróleika eða einhvers konar hegðunarvandamála að mati Embættis landlæknis. Fréttablaðið sagði frá því síðastliðinn þriðjudag að tæplega 36 þúsund dagskammtar af geðlyfjum væru keyptir inn á Mörk hjúkrunarheimili sem jafnast á við að hver vistmaður fái dagskammt á hverjum degi. Hjúkrunarheimili notast við svokallaða RAI-gæðavísa og er þetta einn þeirra þátta sem skoðaðir eru í þeim gæðavísi. Gísli Páll Pálsson, framkvæmdastjóri hjúkrunarheimilisins, sagði við það tilefni að stefnan væri sú að minnka lyfjanotkun sem mest.Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, þingmaður VG, hefur spurt heilbrigðisráðherra um notkun geðlyfja á elliheimilum og vill vita hvernig notkun skiptist niður eftir heimilum. Hún telur notkunina of mikla. „Það er alveg á hreinu að notkun lyfja er of mikil ef fjórðungur vistmanna á öllu landinu er á sterkum geðlyfjum án þess að vera haldinn einhvers konar geðsjúkdómi,“ segir Bjarkey. „Því spyr maður sig hvort mannekla hafi áhrif eða hvort aðrir þættir spili inn í.“ Haukur Ingibergsson, formaður Landssambands eldri borgara, segir að þessar niðurstöður RAI-matsins komi á óvart og hljóti að að kalla á frekari skoðun landlæknisembættisins á því hvað valdi. Mikilvægt sé að sú skoðun gangi hratt fyrir sig og að viðeigandi ráðstafanir séu gerðar til að tryggja að lyfjagjöf á hjúkrunarheimilum sé nákvæm og rekjanleg.Laura Scheving Thorsteinsson, sérfræðingur í eftirliti hjá landlæknisembættinu, segir embættið ekki gera kröfu um úrbætur ef hlutfall þeirra sem eru á geðlyfjum án geðsjúkdóms fari ekki yfir 31 prósent. Allt fyrir neðan það sé eðlilegt. „Þessir innlendu gæðavísar voru gerðir á sínum tíma af fagfólki,“ segir Laura. „Langflestir þeirra sem eru á slíkum lyfjum eru með einhvers konar hegðunarvandamál eða órólegir á einhvern hátt.“Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Vaktin: Austanbylur annan í páskum Veður „Þetta er algjör hetjudáð að fara þarna upp á“ Innlent Rúta valt á Kjalarnesi Innlent Vanhæfi fyrirtækisins til að sinna skyldum sínum sé algert Innlent Stærðar gámur valt af Fjósakletti og lenti á hvolfi Innlent Fjær að heiman en nokkur maður frá upphafi Erlent Bíll við bíl á Hellisheiði eftir að heyrúllur féllu á veginn Innlent Lilja mætt aftur á Alþingi Innlent Fastir bílar, fall af hestbaki og þakkjölur við það að losna Innlent Fylgstu með óveðrinu ganga yfir Veður Fleiri fréttir Virkjuðu viðbragðsáætlun vegna flugslyss Stærðar gámur valt af Fjósakletti og lenti á hvolfi Rotaðist eftir að hafa fokið á höfuðið Flugmönnum leyfist að gera mistök í flughermi „Þetta er algjör hetjudáð að fara þarna upp á“ Rúta valt á Kjalarnesi Fastir bílar, fall af hestbaki og þakkjölur við það að losna Tuttugu þúsund á hvern illa búinn hjólbarða Vanhæfi fyrirtækisins til að sinna skyldum sínum sé algert Bíll við bíl á Hellisheiði eftir að heyrúllur féllu á veginn Lilja mætt aftur á Alþingi Óveðrið hefur áhrif á flugáætlun Icelandair Vanalega óttist fólk að eitthvað hræðilegt sé að gerast Lýstu eftir manni á níræðisaldri „Skynsamlegt að spyrja þjóðina“ Snjóflóð hrifsaði með sér göngugarpa Fólk stillt að mestu á Akureyri „Stórslysalaust“ á Ísafirði í nótt Hvernig greiðir Ragnar Þór atkvæði í ágúst? Gefur skít í helvítishótanir Trumps Viðreins býður fram sinn fyrsta lista á Akranesi Unnið að tillögum um lengingu brimvarnargarða Landeyjahafnar „Vatnsbólið er nánast tómt, það er að tæmast“ Hleypt inn í hollum í Vesturbæjarlaug Eldri borgarar einmana en eigi erfitt með að rífa sig upp á ný Segir stjórnvöld vinna gegn ferðaþjónustunni „Það er munur á karllíkama og kvenlíkama“ Mæla gegn því að ganga ofar en að Steini í Esjunni Óvissa í ferðaþjónustu og stuð á Aldrei fór ég suður Þrír vistaðir í fangaklefa og einn fluttur á bráðamóttöku Sjá meira