Sýknaður af ákæru um úrgangsleka Jóhann Óli Eiðsson skrifar 23. febrúar 2017 10:00 Maðurinn var á leiðinni með sauðfé í slátrun. Fyrirstöðumennirnir á myndinni tengjast fréttinni ekki. vísir/valli
Sláturbílsstjóri á Norðurlandi var á dögunum sýknaður af ákæru um að hafa ekið um með lifandi sauðfé án þess að bifreiðin væri búin safnþró eða safngeymi fyrir úrgang. Dómurinn var kveðinn upp af Héraðsdómi Norðurlands vestra í nóvember en ekki birtur fyrr en í gær. Maðurinn var stöðvaður af eftirlitsmönnum Samgöngustofu í Akrahreppi í október 2015 þegar hann var á leið frá Öxarfirði til Sauðárkróks með sauðfé sem átti að slátra. Í skýrslu eftirlitsmanna kemur fram að úrgangur hafi lekið af bílnum. Bílstjóranum var gefinn kostur á að ljúka málinu með sektargreiðslu. Þegar hann varð ekki við því var ákæra gefin út. Í skýrslutöku af honum fyrir dómi kom fram að bíllinn hefði verið útbúinn safngeymi og að hann hefði ekki orðið var við að úrgangur hefði lekið frá bílnum. Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið „Það er betlmenning og allir eiga að fá allt frítt“ Innlent Þrettán konur höfðu samband svo að nauðgarinn færi í fangelsi Innlent Grunsamlegt ferðalag og fjarstæðukenndar skýringar Innlent „Ég hata andstæðing minn, fyrirgefðu Erika“ Erlent Kastrup lokað vegna drónaflugs Erlent Kvartmilljón fyrir bólusetningu eftir alvarleg veikindi dóttur Innlent „Ég horfði á son minn brotna meira og meira, ár eftir ár“ Innlent Jimmy Kimmel snýr aftur á skjáinn Erlent Lýsir villu og svima en segist hafa séð ljósið Innlent „Dýrlingurinn“ aftur með leigubílaleyfi Innlent Fleiri fréttir Vill frekar fjölga lögreglumönnum heldur en lögreglustöðvum Lýsa eftir Karli Helgasyni Björg ætlar að láta að sér kveða í Viðreisn „Það er betlmenning og allir eiga að fá allt frítt“ 20 börn frá Grænlandi í sundi, skautum og í heimsókn hjá forsetanum Þrettán konur höfðu samband svo að nauðgarinn færi í fangelsi Þrír enn í gæsluvarðhaldi vegna umfangsmikils fíkniefnamáls Löng bið eftir að nauðgari hefji afplánun og betlmenning Sleppt lausum eftir yfirheyrslu Seldi dóp fyrir fjórtán milljónir á hálfu ári Lýsir villu og svima en segist hafa séð ljósið Stefnir í prófkjör, borgarfulltrúar undir feldi og hugsanlega sótt að Heiðu Framlengja gistiheimildina fram á vor Eldra fólk þurfi ekki að endurnýja skírteinið svo oft Grunsamlegt ferðalag og fjarstæðukenndar skýringar „Nauðsynlegt að þetta verði gert af krafti“ Fólk hvatt til að taka strætó Frakkar viðurkenna Palestínu og nýr geðspítali gæti risið í Fossvogi „Ég horfði á son minn brotna meira og meira, ár eftir ár“ Nú má heita Ívalú, Þorbirna og Emerentíana Kvartmilljón fyrir bólusetningu eftir alvarleg veikindi dóttur Frítt í Strætó um allt land í dag Réðst á konur og sló í miðborginni „Dýrlingurinn“ aftur með leigubílaleyfi ESB myndi taka Íslandi opnum örmum Tré ársins 2025 vex í kletti í Ölfusá Íslendingar í flugumferðarstjórn á stærsta flugvelli Grænlands Braust inn og stal bjórkútum Vilja ryðja brautina fyrir aðra í baráttunni við andlitslaust kerfi Eldur kviknaði í íbúð í Bakkahverfi Sjá meira