Bændur spara marga tugi milljóna með sjálfboðaliðum Sveinn Arnarsson skrifar 16. febrúar 2017 07:00 Mörg handtök þarf í landbúnaði, en um þau störf gilda kjarasamningar. vísir/valli
Bændur koma sér undan rúmlega eitt hundrað milljóna króna launakostnaði í hverjum mánuði með nýtingu sjálfboðaliða sé mið tekið af fjölda auglýsinga bænda á netinu. Alþýðusamband Íslands hefur tekið saman fjölda auglýsinga bænda um sjálfboðaliða á næstu mánuðum en óskað er eftir tæplega þrjú hundruð sjálfboðaliðum í vor og sumar. „Miðað við grunnlaun í landbúnaði og tvo yfirvinnutíma á dag og vinnu á laugardögum þá er verið að spara um 390 þúsund krónur í launakostnað á hvern sjálfboðaliða,“ segir Dröfn Haraldsdóttir, sérfræðingur hjá ASÍ. „Á síðum þar sem óskað er eftir sjálfboðaliðum í landbúnaði er verið að óska eftir um 280 starfsmönnum. Miðað við þann fjölda má áætla að bændur séu að spara sér um 108 milljónir króna á mánuði í launakostnað,“ bætir Dröfn við. Hér eru aðeins skoðaðar þær auglýsingar sem opinberar eru á heimasíðum. Einnig er eitthvað um að sjálfboðaliðar komi hingað til lands með öðrum leiðum og svo er einnig auglýst á Facebook eftir sjálfboðaliðum. Dröfn segir það einnig mikilvægt fyrir vinnuveitendur að hafa allt uppi á borðum og fylgja settum reglum. „Við vitum dæmi þess að bóndi hafi þurft að bregða búi eftir að sjálfboðaliði lenti í slysi við vinnu hjá honum. Þetta fólk er ekki tryggt og það þurfti að greiða bætur eftir málaferli,“ segir Dröfn. Einnig eru dæmi um að sjálfboðaliðar hafi orðið fyrir kynferðisofbeldi hér á landi á þeim stöðum sem þeir hafi verið við sjálfboðaliðastörf. Fréttablaðið hefur greint frá því að auglýst er mjög mikið eftir sjálfboðaliðum í ferðaþjónustu og í landbúnaði hér á landi. Starfsgreinasambandið vinnur í því að vakta slíkar síður til að koma upp um svindl á vinnumarkaði og að greitt sé fyrir vinnu eftir kjarasamningum. Um störf í landbúnaði gilda kjarasamningar sem Bændasamtök Íslands hafa samið um við Starfsgreinasambandið. Sindri Sigurgeirsson, formaður Bændasamtakanna, segir mikilvægt að bændur fari eftir kjarasamningum og greiði laun fyrir þau störf sem unnin eru.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Innlent „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Erlent Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíknefnasmygls Innlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Innlent Fleiri fréttir Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíknefnasmygls Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Sjá meira