Slapp líklega af mannavöldum Sveinn Arnarsson skrifar 4. mars 2017 07:00 Fiskeldi er orðinn stór atvinnugrein á Vestfjörðum. Hér sjást kvíar í Patreksfirði. vísir/pjetur
Matvælastofnun hefur rökstuddan grun um hvaðan regnbogasilungur slapp úr kvíum síðastliðið sumar með þeim afleiðingum að hann veiddist í ám á stóru svæði. Stofnunin horfir til Vestfjarða og telur að regnbogasilungurinn hafi ekki sloppið í gegnum göt á netum kvía. Í sumar varð vart regnbogasilungs í öllum ám á Vestfjörðum en einnig á Norðurlandi vestra og í Eyjafirði svo dæmi séu tekin. Ljóst er að slysasleppingar á regnbogasilungi urðu þrjár á síðasta sumri. „Við höfum grun um hvaðan fiskurinn sem veiddist í sumar er ættaður en bíðum slátrunar úr kvíum til að fá haldbærari niðurstöður,“ segir Soffía Katrín Magnúsdóttir, eftirlitsmaður Matvælastofnunar með búnaði og kvíum eldisfyrirtækja. „Málið er enn til rannsóknar hjá okkur og við bíðum átekta eftir því að fyrirtæki slátri fiski. Þá getum við séð hvort afföll séu einhvers staðar í kvíum.“ Frá því regnbogasilungur fór að veiðast í nánast öllum ám á Vestfjörðum hefur Matvælastofnun verið með málið á sinni könnu auk Fiskistofu. Matvælastofnun hefur eftirlit með búnaði fyrirtækjanna en hefur ekki kannað kvíar með köfun allan þennan tíma og gert á þeim óháða rannsókn. „Við köfum ekki til að skoða kvíar. Fyrirtækin ráða sjálf kafara til að skoða sínar kvíar,“ segir Soffía Katrín. Matavælastofnun telur ennfremur ósennilegt að fiskurinn hafi sloppið í gegnum göt á kvíum. Ef stór göt væru á kvíum regnbogasilungs telur Matvælastofnun nær öruggt að það kæmi fram þegar kafarar kanna kvíarnar. „Við teljum frekar að einhvers konar handvömm starfsmanna hafi verið valdur þess að regnbogi slapp í sumar,“ segir Soffía Katrín. Fyrirtæki á Vestfjörðum, sem ala regnbogasilung, sem Fréttablaðið náði tali af í gær segja það hins vegar af og frá að fiskur þeirra hafi sloppið í sumar. Gunnvör í Hnífsdal hafi til að mynda slátrað um 280 tonnum af regnbogasilungi í haust og engin afföll hafi verið hjá þeim. Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Innlent „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Fleiri fréttir „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Sjá meira