Píratar segja ófullnægjandi gögn á bak við fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar Kristín Ólafsdóttir skrifar 26. maí 2017 20:30 Píratar segja ekkert tillit tekið til raunverulegrar fjárþarfar stofnana í fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar. Vísir/Anton
Píratar segja gögn á bak við fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar ófullnægjandi og leiða líkur að því að fjármálaáætlunin standist hvorki lög um opinber fjármál né stjórnarskrá. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu sem flokkurinn sendi frá sér í kvöld. „Nú hefur fengist staðfesting á því sem Píratar óttuðust allt frá því að fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar var lögð fram; áætlun ríkisstjórnarinnar er í raun bara ágiskun, fjármunum er skipt niður á málefnasvið ráðuneyta að því er virðist handahófskennt,“ segir í tilkynningunni. Píratar segja þessar ásakanir byggðar á nýafstöðnum fundi fulltrúa Pírata í fjárlaganefnd með formanni fjárlaganefndar og fulltrúum fjárlaganefndar. Í fréttatilkynningunni segir að á fundinum hafi ekki verið hægt að svara upplýsingabeiðni Pírata um tölur og gögn er liggja að baki fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar. „Ástæðan er einföld: Þessi gögn eru ekki til,“ segir enn fremur í tilkynningu flokksins. Segja takmarkaða greiningu á útgjaldaliðum og fjárþörf liggja fyrir Þá segja Píratar ekkert tillit tekið til raunverulegrar fjárþarfar stofnana og enn fremur að óvíst sé hvort fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar standist lög um opinber fjármál og stjórnarskrá. „Takmörkuð greining á einstaka útgjaldaliðum eða fjárþörf einstakra stofnana eða verkefna liggur fyrir. Það má því leggja þessi vinnubrögð að jöfnu við að fjármálaráðuneytið hafi dregið skiptingu fjármuna í fjármálaáætlun upp úr hatti. Ekkert tillit hefur verið tekið til raunverulegrar fjárþarfar stofnana við þessa ágiskun, ófullnægjandi gögn liggja fyrir um kostnað einstakra verkefna sem fjármálaáætlun setur á herðar einstakra stofnana og er þeim því haldið í óvissu um hvort fjármunir fáist í þau verkefni sem þeim hefur verið falið. Lög um opinber fjármál gera ráð fyrir faglegri úttekt sem undirstöðu fjármálaáætlunar á meðan stjórnarskráin felur löggjafanum fjárveitingarvaldið. Fjármálaáætlun skilur Alþingi eftir í fullkominni óvissu um hvernig framkvæmdarvaldið hyggst ráðstafa fjármunum almennings. Því má leiða líkur að því að fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar standist hvorki lög um opinber fjármál né stjórnarskrá.“
Mest lesið Lýsa uppgötvuninni sem gríðarstórum „hvalakirkjugarði“ Erlent Ætlar ekki að sitja undir ásökunum um barnaníð Innlent Ming Ting mætt í dómsal vegna Edition-málsins Innlent Vísað út úr flugvél: „Þetta er bara ömurlegt“ Innlent Logi sker hlaðvarpara úr snöru Fjölmiðlanefndar Innlent Íranir draga orð Trump til baka og vara fólk við að taka hann trúanlegan Erlent Meirihluti bíður eftir greiningu í meira en ár Innlent Borgin afþakkar risaeðlubein Innlent Sjálftakan „til háborinnar skammar“ Innlent Segir Icelandair krefjast meiri vinnu fyrir lægri laun Innlent Fleiri fréttir Samkomulag um þinglok og blíða í borginni Borgin afþakkar risaeðlubein Segja brottfararstöð ekki samrýmast Barnasáttmálanum Frostbitnir Frónbúar kætast í dag Segir Icelandair krefjast meiri vinnu fyrir lægri laun Logi sker hlaðvarpara úr snöru Fjölmiðlanefndar Búið að semja um þinglok Sakfellingu fyrir að nauðga sofandi kærustu snúið við í Landsrétti Ming Ting mætt í dómsal vegna Edition-málsins Róbert leiðir vinnu hagræðingarhóps nýs meirihluta Meirihluti bíður eftir greiningu í meira en ár Malbika á Reykjanesbraut í kvöld 107 fæddu heima og sjö án aðkomu heilbrigðisstarfsfólks Ætlar ekki að sitja undir ásökunum um barnaníð Eldar í grillum og kveikt í ruslagámi Fara fram á að fjármálaáætlunin sé endurreiknuð Eldur í Árbænum Vill ekki ganga svo langt að kalla þetta klofning innan flokksins Sjálftakan „til háborinnar skammar“ Eldfim staða, sorglegt áhugaleysi og ráðgáta Vísað út úr flugvél: „Þetta er bara ömurlegt“ Hafnar kreddum um verðbólguna Stefnir í uppbótartíma Starfsáætlun Alþingis kippt úr sambandi Tóku þátt í að uppræta rafmyntaþvætti sem teygði anga til Íslands Hótaði að beita skotvopni Finnur ekki fyrir sársauka Árásarmaður Tinnu fær ekki áheyrn: Taldi brotið á mannréttindum minnihlutahópa MDE vísar frá tveimur málum gegn Íslandi Flekahreyfingar innan Samfylkingar Sjá meira