Afþakkaði aðstoð lögreglu eftir líkamsárás Samúel Karl Ólason skrifar 15. janúar 2017 08:55 Vísir/Hari
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í nógu að snúast í gærkvöldi og í nótt. Tilkynnt var um þó nokkrar árásir og nokkuð var um eignaspjöll, ölvun og slys. Þá var nokkuð um ökumenn undir áhrifum ölvunar og/eða fíkniefna. Einn maður sem tilkynnti líkamsárás á Háaleitisbraut sagði að úlpu sinni hefði verið stolið. Hann afþakkaði þó aðstoð lögreglu, sagðist þekkja þann sem réðst á sig og ætlaði að reyna að endurheimta úlpuna sjálfur. Ekki kemur fram í dagbók lögreglu hvort að það hafi heppnast. Þá réðst maður á stúlkur við Tryggvagötu í nótt, en þeim tókst að forða sér inn á hótel sem var þar nærri. Maðurinn var horfinn þegar lögregluþjóna bar að garði, en vitað er hver hann er. Einnig var maður handtekinn við Templarasund nærri Dómkirkjunni en hann var sagður hafa verið að áreita stúlkur. Hann var ofurölvi og var vistaður í fangageymslu í nótt. Þar að auki var maður handtekinn eftir að hann réðst á dyraverði við veitingahús við Laugaveg. Þrjár tilkynningar bárust um menn sem brutu rúður í bílum í miðbænum. Í eitt skiptið sá eigandi bílsins hverjir voru þar að verki og sagði hann að annar þeirra hefði ráðist á sig í miðbænum fyrr um nóttina. Hann vissi hverjir voru að verki. Þá barst lögreglunni tilkynning um að maður hefði fallið af svölum íbúðar á 3. hæð við Breiðvang. Hann var fluttur á Slysadeild til aðhlynningar, en frekari upplýsingar um meiðsl hans liggja ekki fyrir. Annar maður var í mjög annarlegu ástandi í íbúðinni og var hann handtekinn.
Mest lesið Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Erlent Orbán játar sig sigraðan Erlent Lágflugið vekur athygli erlendis Innlent Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ Innlent Maður hífður upp úr Ölfusá Innlent Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Innlent Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Erlent Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Innlent Fleiri fréttir Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Vonbrigði með tilmæli og bjórbann í Bláfjöllum Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Maður hífður upp úr Ölfusá Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Ellefu framboðslistar á kjörseðli borgarbúa í vor Fjórar í valdastöðum á fréttamynd ársins Maður stunginn í heimahúsi á Akureyri Hafi áhrif á vísitöluna en vonandi væntingar líka Aðgerðirnar ekki til þess fallnar að koma í veg fyrir að forsenduákvæðið virkist Annar hvalrekinn á nokkrum dögum Fyrir þinginu að breyta svarmöguleikum þó enginn vafi leiki á umsóknarstöðu Til skoðunar að breyta svarmöguleikum á kjörseðli og sprenging í stofnun bókaklúbba Gæsluvarðhaldskröfu yfir Írisi hafnað Ók á tæplega tvöföldum leyfilegum hraða Spá enn vaxtahækkun í maí Gapandi búrhval rak á land: „Heljarinnar skepna“ Verzló hreppti hljóðnemann eftir sigur gegn MR Landskjörstjórn telur spurningu Þorgerðar gildishlaðna Góðan daginn býður góðan dag Óvæntur ríkisstjórnarfundur boðaður að kvöldi Sjá meira