„Búum ekki yfir upplýsingum þess efnis að hér sé í undirbúningi ódæðisverk“ Jóhann K. Jóhannsson skrifar 6. júní 2017 18:45
Aðstoðaryfirlögregluþjónn segir lögregluyfirvöld ekki búa yfir upplýsingum þess efnis að hér á landi sé hryðjuverk í undirbúningi. Gera má ráð fyrir frekari lokunum fyrir umferð í miðborginni til að tryggja öryggi almennings á stórum viðburðum. Í áhættumati greiningardeildar Ríkislögreglustjóra vegna hryðjuverkahættu hér á landi, sem gefið var út í lok janúar, er áhættan sögð í meðallagi og er metin sú sama og greiningardeildin gaf út fyrir árið 2015. Hryðjuverkaógnin hefur verið að færast nær Íslandi vegna þeirra atburða sem gerst hafa í Svíþjóð, Bretlandi, Frakklandi og Þýskalandi á síðustu misserum. „Við teljum að bara eðlilegt að við færum okkur í meðallag sem að þýðir það að það sé ekki hægt að útiloka hættuna á hryðjuverkum,“ segir Gylfi Hammer Gylfason, aðstoðaryfirlögregluþjónn í greiningardeild ríkislögreglustjóra. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur óskað eftir áhættumati frá greiningardeild ríkislögreglustjóra vegna þeirra fjölmennu viðburða sem haldnir verða í miðborginni í sumar. „Þessi vinna er farin af stað og gengur vel og það má segja það að þessi beiðni sem kom frá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, við brugðumst mjög hratt við henni. Það má búast við því að lögreglan verði með einhverskonar ráðstafanir í kjölfarið,“ segir Gylfi. Í ljósi þeirra hryðjuverka sem hafa átt sér stað í Evrópu á undanförnum misserum, og hvernig þau hafa verið framin, segir Gylfi líklegt að almenningur komi til með að sjá breytingar á lokunum fyrir umferð nærri vegfarendum fljótlega. „Það má alveg eins búast við því, en við erum að vinna þetta hættumat og skilum því síðan til lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu sem að tekur síðan ákvörðun í framhaldinu ákvörðun um hvaða viðbúnaður þarf að vera til staðar,“ segir Gylfi. Viðbrögð vegna hugsanlegra hryðjuverka hér á landi hafa verið æfð af lögreglu skipulega síðustu þrjú ár. „Lögreglan og þá tala ég um lögregluna í heild sinni og greiningardeild ríkislögreglustjóra að við búum ekki yfir upplýsingum þess efnis að hér sé í undirbúningi ódæðisverk, en það má geta þess að þessi heimur, hryðjuverkaheimur, er síbreytilegur og hraður,“ segir Gylfi.
Tengdar fréttir Óska eftir áhættumati frá Ríkislögreglustjóra vegna viðburða í miðborginni í sumar "Það verður alltaf erfitt að takast við við svona atburð," segir yfirlögregluþjónn 5. júní 2017 18:45 Mest lesið Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Innlent „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Innlent Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Innlent Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Innlent Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Innlent Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin Innlent Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Innlent „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ Innlent Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Innlent Fleiri fréttir Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Gagnrýna könnun sem sýni fram á stuðning við dánaraðstoð Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Flýtir afgreiðslu um allt að mánuð Sjá meira
Óska eftir áhættumati frá Ríkislögreglustjóra vegna viðburða í miðborginni í sumar "Það verður alltaf erfitt að takast við við svona atburð," segir yfirlögregluþjónn 5. júní 2017 18:45