Aska frumbyggja Eldlands sögð vera í Raufarhólshelli Kristján Már Unnarsson skrifar 6. júní 2017 21:15
Minningarskjöldur sem nýlega fannst í Raufarhólshelli er sagður styðja frásögn um að ösku síðasta frumbyggjans af syðsta ættbálki jarðar hafi verið komið fyrir í hellinum fyrir um þrjátíu árum. Fjallað var um þessa dularfullu sögu í frétt Stöðvar 2, sem sjá má í spilaranum hér að ofan, en þar var rætt við Hallgrím Kristinsson, framkvæmdastjóra Raufarhóls ehf. Sagan segir að í kringum árið 1990 hafi útlendingur komið með duftker inn í Raufarhólshelli og sett upp minningarskjöld þar sem hann kom fyrir ösku frumbyggja frá syðsta hluta Chile, Eldlandi. Sagan þótti undarleg enda virtist skjöldurinn hafa glatast og fannst ekki í hellinum. Hallgrímur Kristinsson, framkvæmdastjóri Raufarhóls ehf.Stöð 2/Friðrik Þór Halldórsson.Þegar starfsmenn Raufarhóls ehf. voru nýlega að smíða göngupall í hellinum fannst hins vegar skjöldurinn og hafði hann fallið á milli stórra steina, að sögn Hallgríms. Þeir fóru því að kanna söguna betur og röktu hana til manns sem átti að hafa fyrir 1950 kynnst syðsta þjóðflokki heims, Yaghan-fólkinu á Eldlandi, syðst í Suður-Ameríku, en ættbálkurinn taldi þá um 200 manns. Ein sagan er að þetta hafi verið Þjóðverji og þegar hann heimsótti Eldland fjörutíu árum síðar hafi aðeins ein kona verið eftir af ættbálknum. „Hann hafði lofað þessari konu að koma ösku hennar á friðsaman og fallegan stað. Og hann fór með öskuna hingað í Raufarhólshelli og setti þennan platta upp til minningar um þennan ættbálk,” segir Hallgrímur. Nánar var fjallað um indíánasöguna og Raufarhólshelli í nýjum þætti sem hóf göngu sína á Stöð 2 í kvöld; Ísland í sumar. Úr Raufarhólshelli. Búið er að gera hellinn greiðfæran með stígum og göngupöllum. Ljósabúnaður lýsir upp hellinn.Vísir/Vilhelm.
Tengdar fréttir Gjaldtaka hafin í Raufarhólshelli Kostar 4900 krónur fyrir klukkutímaskoðun. 1. júní 2017 14:30 Raufarhólshellir greiðfær til að sýna ferðamönnum Aðgengi að Raufarhólshelli hefur verið stórbætt enda er hann að fá nýtt hlutverk sem ferðamannastaður, þar sem seldur verður aðgangur með leiðsögn. 24. maí 2017 20:15 Mest lesið Vísað út úr flugvél: „Þetta er bara ömurlegt“ Innlent Opnar sig um gróf ummæli um hjónabandið Innlent Finnur ekki fyrir sársauka Innlent Ólga í Samfylkingu: „Þessi ólög eru ekki í okkar nafni sett“ Innlent Sorglegt hve fáir Kópavogsbúar hafi skrifað undir listann Innlent Rýmdu skrifstofur Hagkaupa vegna hótunar Innlent Sjálftakan „til háborinnar skammar“ Innlent Boðar harðar árásir og hernám Kharg-eyju Erlent Árásarmaður Tinnu fær ekki áheyrn: Taldi brotið á mannréttindum minnihlutahópa Innlent Vill ekki ganga svo langt að kalla þetta klofningu flokksins Innlent Fleiri fréttir Fara fram á að fjármálaáætlunin sé endurreiknuð Eldur í Árbænum Vill ekki ganga svo langt að kalla þetta klofningu flokksins Sjálftakan „til háborinnar skammar“ Eldfim staða, sorglegt áhugaleysi og ráðgáta Vísað út úr flugvél: „Þetta er bara ömurlegt“ Hafnar kreddum um verðbólguna Stefnir í uppbótartíma Starfsáætlun Alþingis kippt úr sambandi Tóku þátt í að uppræta rafmyntaþvætti sem teygði anga til Íslands Hótaði að beita skotvopni Finnur ekki fyrir sársauka Árásarmaður Tinnu fær ekki áheyrn: Taldi brotið á mannréttindum minnihlutahópa MDE vísar frá tveimur málum gegn Íslandi Flekahreyfingar innan Samfylkingar Rýmdu skrifstofur Hagkaupa vegna hótunar Ráðstöfun Baldurs til Eyja brjóti gegn samningi Samkeppniseftirlitið dragi upp skakka mynd af matvælaverðinu Brúin yfir Djúpafjörð boðin út Hermann Nökkvi verður aðstoðarmaður Vilhjálms Árnasonar Sorglegt hve fáir Kópavogsbúar hafi skrifað undir listann Leggja til að mestu gljúfurkerfi landsgrunnsins verði vernduð „Ljóst að deilunni er ekki lokið“ Bein útsending: Funda um verðbólgu, verðlag og laun Ólga í Samfylkingu: „Þessi ólög eru ekki í okkar nafni sett“ Færa umferð af norður- á suðurakbraut á Breiðholtsbraut Mættu með stungusár á lögreglustöðina Veglegt veiðihús rís fyrir silungasvæðið Þjónusta þjarka og falskra aðganga gengur kaupum og sölu Opnar sig um gróf ummæli um hjónabandið Sjá meira
Raufarhólshellir greiðfær til að sýna ferðamönnum Aðgengi að Raufarhólshelli hefur verið stórbætt enda er hann að fá nýtt hlutverk sem ferðamannastaður, þar sem seldur verður aðgangur með leiðsögn. 24. maí 2017 20:15