Innlent

Eiríkur Jónsson krefur íslenska ríkið um bætur

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Eiríkur Jónsson, prófessor við lagadeild HÍ, var einn fjögurra sem Sigríður Á. Andersen tók af lista dómnefndar.
Eiríkur Jónsson, prófessor við lagadeild HÍ, var einn fjögurra sem Sigríður Á. Andersen tók af lista dómnefndar. vísir/eyþór

Eiríkur Jónsson prófessor við lagadeild við Háskóla Íslands hefur stefnt íslenska ríkinu og krafist bóta vegna skipunar í Landsrétt. Eiríkur var einn þeirra fimmtán sem dómnefnd lagði til að skipaður yrði í Landsrétt.

Sigríður Á. Andersen dómsmálaráðherra gerði fjórar breytingar á tillögu nefndarinnar og var Eiríkur einn hinna fjögurra sem skipt var út.

Jóhannes Rúnar og Ástráður Haraldsson stefndu íslenska ríkinu vegna ákvörðunar Sigríðar Á. Andersen.Vísir/Garðar

Tveir hinna fjögurra, lögmennirnir Ástráður Haraldsson og Jóhannes Rúnar Jóhannesson, stefndu ríkinu fyrr á árinu. Lauk málinu í Hæstarétti fyrr í mánuðinum með þeirri niðurstöðu að ríkið var sýknað af kröfu um viðurkenningu á skaðabótaskyldu. Þeim voru hins vegar dæmdar 700 þúsund krónur í bætur vegna ólögmætrar málsmeðferðar.

Hæstiréttur vísað meðal annars til þess, þegar ríkið var sýknað af kröfu um viðurkenningu á skaðabótaskyldu, að Ástráður og Jóhannes hefðu ekki sýnt fram á fjárhagslegt tjón. Þeir kusu að framvísa ekki skattframtölum kröfu sinni til stuðnings.

Í kjölfar dóms Hæstaréttar ákvað þriðji umsækjandinn sem Sigríður skipti út af lista dómnefndar, héraðsdómarinn Jón Höskuldsson, að stefna ríkinu þar sem hann teldi „ótvírætt að hann ætti kröfu á hendur íslenska ríkinu vegna þessara brota og valdníðslu“.

Jón sagðist í stefnu sinni telja tjónið nema mismunum launa, lífeyrisréttinda og annarra launatengdra réttinda dómara við Landsrétt annars vegar og héraðsdómara hins vegar. Hann krefst þess að fá muninn greiddan út starfsævi sína, eða í níu ár.

Eiríkur Jónsson varð fertugur á árinu og á 27 ár eftir á vinnumarkaði sé miðað við hefðbundinn eftirlaunaaldur. Auk þess eru laun lagaprófessora við háskólastofnun önnur og lægri en héraðsdómara. Þá eru þau, samkvæmt upplýsingum af vef félags prófessora, líklega um einni milljón lægri en laun dómara við Landsrétt, sem eru um 1,7 milljón króna.

Eiríkur gæti því sýnt fram á tjón sem nemur á annað hundrað milljón krónum og eru þá ekki taldar með lífeyrisgreiðslur. Ekki er gerð nein krafa um upphæð í stefnu Eiríks. Hann staðfesti í samtali við fréttastofu að stefnan hefði verið send ríkinu í gær en vildi að öðru leyti ekki tjá sig um málið.

Hafa því allir fjórir umsækjendurnir sem dómsmálaráðherra skipti út af lista dómnefndarinnar stefnt ríkinu.


Tengdar fréttir

Krefst tugmilljóna vegna skipunar Sigríðar

Héraðsdómarinn Jón Höskuldsson hefur sent dómsmálaráðherra bréf þar sem hann krefur íslenska ríkið um skaða- og miskabætur vegna skipunar í Landsrétt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×