Ekki til fé til að greiða sauðfjárbændum næsta haust Sveinn Arnarsson skrifar 17. mars 2017 07:00 Svo gæti farið að afurðastöðvar greiði bændum aðeins hluta af verði hvers skrokks. vísir/gva
Svo gæti farið að afurðastöðvar hefðu ekki fjármagn til að staðgreiða innlegg sauðfjárbænda í næstu sláturtíð. Síðustu tvö ár hafa verið erfið fyrir sláturleyfishafa í sauðfjárrækt. Bændur eru áhyggjufullir yfir komandi vetri. Þetta kom fram í máli Ágústs Andréssonar, yfirmanns afurðastöðvar Kaupfélags Skagfirðinga, á aðalfundi Félags sauðfjárbænda í Skagafirði sem haldinn var fyrir skömmu. Ræddu bændur þar stöðuna sem er orðin nokkuð strembin.Ágúst Andrésson, forstöðumaður kjötafurðastöðvar Kaupfélags SkagfirðingaÁgúst segir það rétt að hann hafi viðrað erfiða stöðu afurðastöðva á fundinum. Staðan væri þannig nú að eitthvað þyrfti að gera. „Á þessum fundi sagði ég að afurðastöðvar margar hverjar gætu ekki staðgreitt innlegg bænda að fullu í haust. Því þyrfti að koma til þess að sláturhúsin greiddu til bænda hluta af innleggi þeirra og síðan væri hægt að greiða þeim fyrir hinar afurðirnar þegar væri ljóst með sölu á þeim,“ segir Ágúst. Framleiðsla á lambakjöti er rúmlega 3.500 tonnum meiri en innanlandsneyslan. Með sterku gengi krónunnar hefur verð fyrir afurðirnar hríðfallið og því erfitt um vik að selja á vel borgandi markaði erlendis. Merete Rabölle, formaður Félags sauðfjárbænda í Skagafirði, segir bændur áhyggjufulla yfir stöðunni. „Auðvitað erum við áhyggjufull. Staða krónunnar er að sliga allan útflutning. Það verður erfitt fyrir okkur ef á að lækka afurðaverðið til okkar aftur eins og var gert í fyrra,“ segir Merete. Ágúst segir minni skrokka vera auðveldari söluvöru eins og staðan er núna. Einnig sé betra ef hægt er að minnka fallþunga skrokkanna og létta þannig af afurðastöðvum á meðan farið er í gegnum þennan brimskafl. „Við höfum alltaf sagt þetta vera tímabundið ástand. Ef hægt er að slátra fyrr en ella og minnka þannig magnið gætum við komist vel í gegnum þetta. Hins vegar samrýmist það ekki ræktunarmarkmiðum en við lítum á þetta sem tímabundið ástand.“ Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Ísrael gerir árásir á Tehran og Beirút og Íranir svara fyrir sig Erlent „Þá er bara búið að skemma MR“ Innlent Gular viðvaranir á suðvesturhorninu Veður Íslenskt par flýr Dúbaí á eigin vegum Innlent Vaktin: Sprengjum rignir enn Erlent Við öllu búin en vonar að árásunum fari að linna Innlent D-listinn nærri því sá sami en óljóst með Elliða Innlent Frakkar fjölga kjarnavopnum Erlent Davíð hafi verið hrókur alls fagnaðar og harður í horn að taka Innlent Merki um tengsl við erlenda leyniþjónustu Innlent Fleiri fréttir Gæti orðið flughált síðdegis Við öllu búin en vonar að árásunum fari að linna D-listinn nærri því sá sami en óljóst með Elliða „Þá er bara búið að skemma MR“ Fyrsti framboðslisti Viðreisnar í Ísafjarðarbæ samþykktur Davíð hafi verið hrókur alls fagnaðar og harður í horn að taka Fyrsti dagur samræmdra prófa í fimm ár Björgunarsveitir ferja heilbrigðisstarfsfólk í og úr vinnu Tók rúma þrjá tíma að slökkva eldinn Íslenskt par flýr Dúbaí á eigin vegum Átökin breiðast út: Brá illilega þegar nærliggjandi hótel var sprengt í loft upp Dýpkun Landeyjahafnar seinkar: „Algerlega óásættanlegt“ Ákærður fyrir að nauðga konu ítrekað Hringveginum lokað vegna veðurs Davíðs minnst á Alþingi Merki um tengsl við erlenda leyniþjónustu Allt tiltækt lið slekkur eld í Hafnarfirði Skipta alþjóðalög máli eða ekki? Nýtt framboð í Bolungarvík Kristrún minnist Davíðs og víða flaggað í hálfa stöng Tók sambýliskonu sína hálstaki en var sýknaður Minnisstæð heimsókn til Davíðs fyrir jól Voru í safarí þegar þær heyrðu í sprengjuárás Hringvegurinn líklega lokaður til morguns Íslenskir strandaglópar í Dúbaí Leggur lokahönd á þingsályktun um þjóðaratkvæðagreiðslu Vélarvana bátur dreginn til hafnar í Sandgerði Gabríel Douane ákærður fyrir að berja þrjá fangaverði með úri Davíð Oddsson er látinn Ekki nóg af sætum, salernum, mat eða upplýsingum Sjá meira