Allt að 100% afsláttur á íslenskum veitingastöðum í þágu barna Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 16. febrúar 2017 14:25 Ylfa Helgadóttir meistarakokkur er eigandi veitingahússins Kopar sem tekur þátt í verkefninu. 100 prósent afsláttur er veittur af barnamatseðli staðarins á meðan átakinu stendur. Vísir/Stefán
Út að borða fyrir börnin, fjáröflunarátak Barnaheilla og veitingastaða hófst í gær og stendur yfir til 15. mars. Alls styðja 40 staðir átakið á 109 stöðum í öllum landsfjórðungum með því að láta hluta af verði valinna rétta renna til verkefna sem snúa að vernd barna gegn ofbeldi. Aldrei hafa fleiri staðir tekið þátt í átakinu sem nú fer fram í sjöunda sinn og stendur yfir í einn mánuð. „Við erum himinlifandi með þennan fjölda veitingastaða sem eru tilbúnir að styðja málstaðinn á þennan hátt,” segir Erna Reynisdóttir, framkvæmdastjóri Barnaheilla – Save the Children á Íslandi, í fréttatilkynningu. „Samtökin okkar eru háð velvilja og stuðningi bæði almennings og fyrirtækja og þetta hjálpar okkur að vinna enn betur að þeim frábæru og mikilvægu verkefnum sem heyra undir þennan málaflokk hjá okkur.” Ísland festi barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna í lög árið 2013 og í honum er börnum tryggður réttur til verndar gegn ofbeldi. Það er hlutverk hinna fullorðnu að gæta þess að hvert og eitt barn njóti réttar síns. Eitt stærsta verkefni Barnaheilla sem snýr að vernd barna gegn ofbeldi er Vinátta, forvarnarverkefni gegn einelti í leikskólum. Verkefnið er danskt að uppruna, byggt á nýjustu rannsóknum um einelti og hefur reynst sérstaklega vel. Nú er unnið að því að þýða og staðfæra efni fyrir fyrstu bekki grunnskóla. „Þú getur slegið tvær flugur í einu höggi með því að fara út að borða með börnin. Bæði veitir þú börnunum gleði og átt með þeim samverustundir og styður í leiðinni mannréttindi barna og vernd þeirra gegn ofbeldi,” segir Erna en nánar má lesa um verkefnið á vef Barnaheilla.Að neðan má sjá lista yfir veitingastaðina sem taka þátt í verkefninu og hve mikinn afslátt hver og einn veitir. 900 GRILLHÚS - 50% AF BARNAMATSEÐLI Vestmannabraut 23, Vestmannaeyjum AKUREYRI BACKPACKERS – 25% AF KLASSÍSKUM HAMBORGARA Hafnarstræti 98, Akureyri BRYGGJAN – 25% AF BARNAMATSEÐLI Strandgötu 49, Akureyri CAFÉ BLUE – 50% AF BARNAMATSEÐLI Kringlunni, Reykjavík COOCOO'S NEST – 50% AF ÖLLUM RÉTTUM FYRIR BÖRN Grandagarði 23, Reykjavík CULIACAN – 25% AF BARNAMATSEÐLI Suðurlandsbraut 4a, Reykjavík DOMINOS – 35% AF SÓTTUM PIZZUM, GILDIR EKKI Á TILBOÐUM 22 staðir víða um landið EINARSHÚSIÐ – 25% AF BARNAMATSEÐLI Bolungarvík EINSI KALDI – 50% AFSLÁTTUR FYRIR BÖRN Vestmannabraut 28, Vestmannaeyjum ELDOFNINN GRÍMSBÆ – 25% AF MARGARITU PIZZU Grímsbæ við Bústaðarveg, Reykjavík GRILL 66 – 25% AF PYLSU OG SVALA 11 staðir víða um landið HAMBORGARAFABRIKKAN – 25% AF BARNAMATSEÐLI Höfðatorgi, Kringlunnni og á Akureyri HÓTEL SELFOSS – 25% AF 3JA RÉTTA MATSEÐLI: REYKT ÖND, LAMBAFILLET EÐA FISKUR DAGSINS OG SÚKKULAÐIKAKA Eyrarvegi 2, Selfossi HVER RESTAURANT – 50% AF BARNAMATSEÐLI Breiðumörk 1c, Hveragerði HVÍTI RIDDARINN – 30% AF BARNAMATSEÐLI Háholti 13, Mosfellsbæ ÍSLENSKA FLATBAKAN – 25% AF HVÍTLAUKSBRAUÐI, BÖKU MEÐ 2-3 ÁLEGGJUM (SÉRÁLEGG GILDA EKKI) OG EFTIRRÉTTABÖKU Bæjarlind 2, Kópavogi KFC – 25% AF BARNAMATSEÐLI 8 staðir í Reykjavík, Hafnarfirði, Kópavogi, Reykjanesbæ, Mosfellsbæ og Selfossi KOPAR – 100% AF BARNAMATSEÐLI Geirsgötu 3, Reykjavík KRINGLUKRÁIN – 25% AF BARNAMATSEÐLI Kringlunni 4-12, Reykjavík LAUGAÁS – 25% AF BARNAMATSEÐLI Laugarásvegi 1, Reykjavík LAUNDROMAT – 25% AF BARNAMATSEÐLI Austurstræti 9, Reykjavík MAR – 15% AF BARNAMATSEÐLI OG AF TVEIMUR RÉTTUM FYRIR FULLORÐNA Geirsgötu 9, Reykjavík NAUTHÓLL – 50% AF BARNAMATSEÐLI Nauthólsvegi 106, Reykjavík NINGS – 50% AF BARNAMATSEÐLI 3 staðir í Hlíðarsmára í Kópavogi, Suðurlandsbraut og Stórhöfða í Reykjavík PIZZA HUT – 25% AF BARNAMATSEÐLI Smáralind, Kópavogi ROADHOUSE – 25% AF BARNAMATSEÐLI Snorrabraut 56, Reykjavík ROSSOPOMODORO – 25% AF BARNAMATSEÐLI Laugavegi 40, Reykjavík RUB 23 – 50% AF BARNAMATSEÐLI Kaupvangsstræti 6, Akureyri RUBY TUESDAY – 25% AF BARNAMATSEÐLI 2 staðir á Höfðabakka 9 og Skipholti 19 í Reykjavík SAFFRAN – 25% AF BARNAMATSEÐLI 4 staðir í Glæsibæ og á Bildshöfða í Reykjavík, á Dalvegi í Kópavogi og Bæjarhrauni í Hafnarfirði SALT CAFÉ & BISTRO – 25% AF BARNAMATSEÐLI OG AF EINNI PIZZU Á MATSEÐLI Miðvangi 2-4, Egilsstöðum SIGLÓ HÓTEL – 25% AF BARNAMATSEÐLI OG AF TVEIMUR RÉTTUM Á BARMATSEÐLI Snorragata 3, Siglufirði SJÁVARGRILLIÐ – 100% AF BARNAMATSEÐLI Skólavörðustíg 14, Reykjavík SKRÚÐUR – 25% AF BARNAMATSEÐLI Hótel Sögu, Reykjavík SMURSTÖÐIN – 25% AFSLÁTTUR FYRIR BÖRN TIL 12 ÁRA ALDURS Hörpunni, Reykjavík SÓLON – 50% AFSLÁTTUR AF BARNAMATSEÐLI Bankastræti 7a, Reykjavík SUBWAY – 25% AF BARNAMATSEÐLI 23 staðir víða um landið TACO BELL – 25% AF BARNAMATSEÐLI 2 staðir, Hjallahrauni 15 í Hafnarfirði og Þjóðhildarstíg 1 í Grafarholti VON MATHÚS – 50% AF BARNAMATSEÐLI Strandgötu 75, Hafnarfirði ÞRASTALUNDUR – 100% AF BARNAMATSEÐLI OG 25% AF BRUNCH Þrastalundi við Þrastaskóg
Mest lesið Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Innlent „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Erlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíknefnasmygls Innlent Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Innlent Fleiri fréttir Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíknefnasmygls Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Sjá meira