Telja stefnu borgarinnar skaða samkeppni Jón Hákon Halldórsson skrifar 12. apríl 2017 07:00 Samkeppniseftirlitið telur að stefna Reykjavíkurborgar um fækkun bensínstöðva vinni gegn eigin markmiði. vísir/valli „
Við ætlum að fá viðræður við Samkeppniseftirlitið og fá betri útlistun á því hvað það leggur til að við gerum með það að samræma annars vegar umhverfissjónarmið og hins vegar samkeppnissjónarmið,“ segir Björn Blöndal, formaður borgarráðs, um viðbrögð borgarinnar við áliti Samkeppniseftirlitsins. Björn segir Samkeppniseftirlitið hafa boðið upp á þessar viðræður í bréfi til borgarinnar og borgarráð þiggi það.Björn Blöndal, formaður borgarráðsvísir/pjeturSamkeppniseftirlitið kemst að þeirri niðurstöðu í áliti sínu, sem unnið er í tengslum við markaðsrannsókn á íslenska eldsneytismarkaðnum, að stefna Reykjavíkurborgar um að fækka bensínstöðvum í Reykjavík raski samkeppni á eldsneytismarkaðnum og sé almenningi til tjóns. Samkeppniseftirlitið vill því að Reykjavíkurborg beiti sér fyrir aðgerðum sem miða að því að draga úr þeim samkeppnishindrunum sem leiða af þessari stefnu. Í áliti Samkeppniseftirlitsins kemur fram að Festi, sem rekur verslanir Krónunnar, vildi lóð undir eldsneyti á Fiskislóð 15-21. Umhverfis- og skipulagsráð Reykjavíkurborgar tók fyrirspurnina fyrir á fundi sínum hinn 17. ágúst síðastliðinn. Meirihluti umhverfis- og skipulagsráðs tók neikvætt í fyrirspurnina og bókaði meðal annars að hún samrýmdist hvorki stefnu borgarinnar um fækkun bensínstöðva né nýsamþykktri loftslagsstefnu Reykjavíkurborgar. Þar er stefnt að því að dælur fyrir jarðefnaeldsneyti innan borgarmarkanna verði 50 prósent færri árið 2030 og verði að mestu horfnar árið 2040. Samkeppniseftirlitið telur að stefna og framkvæmd Reykjavíkurborgar sé skýrt dæmi um skaðsemi þess að huga ekki að áhrifum skipulags og lóðaúthlutunar á samkeppni. Markmið um betri nýtingu lóða og almenna fækkun eldsneytisstöðva og umhverfismál eigi fullan rétt á sér. „Hins vegar eru sterkar vísbendingar um að þær leiðir sem borgin hefur valið að þessu markmiði hafi þveröfug áhrif,“ segir í álitinu. Þetta felist meðal annars í því að nýir eða smærri aðilar hafi engar eða mjög fáar eldsneytisstöðvar á Reykjavíkursvæðinu í upphafi starfsemi sinnar og séu þannig ekki í aðstöðu til þess að leggja niður bensínstöð á móti nýrri mögulegri lóð. „Sem slík skapar stefna borgarinnar því aðgangshindrun að markaðnum. Þar með minnka líkur á virkara samkeppnislegu aðhaldi gagnvart starfandi félögum. Það leiðir til þess að minni hvatar eru til þess að hagræða á markaðnum. Samhliða er stefna borgarinnar til þess fallin að skapa hvata eða aðstæður fyrir núverandi stærri keppinauta á svæðinu til að halda að sér höndum þegar kemur að því að loka bensínstöðvum vegna þess að með því eykst hættan á því að nýr eða annar keppinautur opni nýja stöð á viðkomandi svæði. Af þessum sökum getur stefna borgarinnar beinlínis unnið gegn fækkun eldsneytisstöðva, þvert á markmið hennar,“ segir í áliti Samkeppniseftirlitsins.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Innbrot í sælkerabakarí: „Ég grét í allan gærdag en opnaði samt“ Innlent Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais Innlent Lokuðu flugbraut vegna dróna Innlent „Þeir sem taka pening frá veðmálafyrirtækjum ættu að líta í eigin barm“ Innlent Hafnarfjörður hafði betur gegn Jóni Rúnari Innlent „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Innlent Byrjaði skyndilega að taka konuna hálstaki og hélt í 40 sekúndur Innlent Sænskur Evrópuþingmaður kærir danskan kollega til lögreglu Erlent Gagnrýnin byggð á misskilningi Innlent McConnell birtir mynd af sér á spítala Erlent Fleiri fréttir Langflestir umsækjendur frá Úkraínu „Ef þú vilt græða þá ferðu í að selja loftkælingu í Evrópu“ „Þeir sem taka pening frá veðmálafyrirtækjum ættu að líta í eigin barm“ Byrjaði skyndilega að taka konuna hálstaki og hélt í 40 sekúndur Allt lið kallað út vegna elds í vélarrúmi „Það varð uppi fótur og fit“ Endurreisn mýranna megi ekki bíða lengur Olíuverð, trjáþjófnaður og áhrifagjörn ungmenni Hafnarfjörður hafði betur gegn Jóni Rúnari „Elliðaárnar eru bakkafullar af göngulaxi“ Innbrot í sælkerabakarí: „Ég grét í allan gærdag en opnaði samt“ Brotist inn í Fíladelfíuna og gítar stolið Gæti orðið hálf milljón árið 2037 Gagnrýnin byggð á misskilningi Innbrot í kirkju á höfuðborgarsvæðinu Lokuðu flugbraut vegna dróna Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Sektuðu í grennd við Símamótið „Við erum að svara kalli tímans“ Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Á fimmta tug barna vilja sækja skóla í Grindavík „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Hvalur skaut up kollinum í Hólmavík Mælirinn segir 33 gráður „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Atvinnulausum í byggingariðnaði fjölgar gríðarlega Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Brotist inn og peningaskápur tekinn Sjá meira