Svarthöfði olli uppþoti og rýmingu skóla Samúel Karl Ólason skrifar 5. maí 2017 13:37 Svarthöfði spókar sig í sólinni. Vísir/Getty
Lögregla var kölluð til skóla í Bandaríkjunum í gær eftir að hrætt foreldri hringdi eftir að hafa séð lávarð myrku hliðarinnar ganga inn í skólann. Skólinn var rýmdur í snari eftir símtalið og nemendur færðir af svæðinu á meðan að lögregluþjónar könnuðu skólann ítarlega og gengu úr skugga um að engin hætta væri á ferðum. Eins og margir eflaust vita getur Svarthöfði í kvikmyndunum, meðal annars, kyrkt fólk með hugaraflinu einu og því gætu einhverjir haldið að þarna hefði geta skapast gífurleg hætta. Ekki liggur fyrir hvort að Svarthöfði hafi verið vopnaður geislasverði sínu, en það verður að teljast líklegt. Dagurinn í gær, hinn fjórði maí, er víða haldinn hátíðlegur sem Alþjóðlegi Star Wars dagurinn og klæðir fólk sig sem persónur úr kvikmyndunum um allan heim. Einn nemandi í Ashwaubenon í Wisconsin ákvað að fara klæddur sem Svarthöfði í skólann. Foreldrið sem hringdi á lögregluna, þekkti búninginn ekki og taldi sig sjá grímuklæddan aðila í skotheldu vesti og ákvað því að kalla yfirvöld til. Einhverjir fjölmiðlar ytra vilja meina að nemandinn hafi verið klæddur í Stormsveitarbúning (Stormtrooper) en yfirmaður rannsóknardeildar lögreglunnar í Ashwaubenon segir að hann hafi verið klæddur sem Svarthöfði (Darth Vader). Forsvarsmenn skólans segja ljóst að nemandinn hafi gert „mistök“ eða einfaldlega sýnt „dómgreindarleysi“. Lögreglan segir að foreldrið sem um ræðir hafi brugðist rétt við og nemandinn verður ekki ákærður eða refsað á nokkurn hátt.
Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Erlent Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Erlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Veður Fleiri fréttir Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Sjá meira