Íslendingar trassa enn innleiðingu á EES-gerðum Atli Ísleifsson skrifar 6. júlí 2017 14:36 Frammistöðu Íslands hrakar frá síðasta mati og eru nú átján tilskipanir sem bíða innleiðingar. vísir/ernir
Ísland stendur sig enn og aftur einna verst við innleiðingu á tilskipunum og reglugerðum á Evrópska efnahagssvæðinu. Þetta kemur fram í uppfærðu frammistöðumati ESA, Eftirlitsstofnunar EFTA. Í frétt á vef ESA segir að frammistöðu Íslands hrakar frá síðasta mati og eru nú átján tilskipanir sem bíða innleiðingar. Það þýðir að innleiðingarhallinn eykst og er nú 2,2 prósent, vel yfir meðaltali aðildarríkja Evrópusambandsins sem er 1,5 prósent. Þannig eru fjórar tilskipanir eldri en tveggja ára og ein níu ára. Í skýrslunni kemur fram að frammistaða Íslands valdi enn á ný vonbrigðum á öllum sviðum og eru íslensk stjórnvöld hvött til að grípa til aðgerða og sýna stuðning sinn við EES-samninginn í verki.Noregur með lægsta innleiðingarhallann Frammistöðumatið sýnir hvernig stjórnvöldum á Íslandi, Liechtenstein og Noregi gengur að innleiða tilskipanir og reglugerðir innri markaðarins á réttum tíma. Frammistaðan er þar borin saman við frammistöðu hinna 29 EES-ríkjanna. „Meginniðurstaða frammistöðumatsins er sú að Noregur, ásamt einu ríki Evrópusambandsins, er með lægsta innleiðingahallan af öllum EES-ríkjunum. Framfarir hjá Liechtenstein verða til þess að ríkið er meðal þeirra tíu ríkja sem standa sig best. Ísland stendur sig aftur einna verst meðal EES-ríkjanna. Í frammistöðumatinu má sjá að Noregur heldur áfram að standa sig vel og aðeins bíða þrjár tilskipanir þess að vera innleiddar að fullu. Fyrir vikið er innleiðingarhalli Noregs aðeins 0,4%. Frammistaða Liechtenstein heldur áfram að batna og aðeins eru sjö tilskipanir sem bíða innleiðingar. Innleiðingarhallinn er 0,9%. Hins vegar hrakar frammistöðu Íslands og eru átján tilskipanir sem bíða innleiðingar. Það þýðir að innleiðingarhallinn eykst og er nú 2,2 prósent. Það er vel yfir meðaltali aðildarríkja Evrópusambandsins sem er 1,5 %. Innleiðingarhallinn tekur aðeins til þeirra gerða sem EFTA-ríkin hafa skuldbundið sig til að innleiða á grundvelli EES-samningsins. Tilgangurinn með frammistöðumatinu er að fylgjast með því að aðildarríkin standi við þær skuldbindingar sínar og tryggi þar með fullan ávinning af EES-samningum fyrir alla hagsmunaaðila. Tímanleg innleiðing sameiginlegra reglna er forsenda þess að hægt sé að tryggja jafnræði á innri markaðnum og öll EES ríkin eru skuldbundin til að virða tímamörk í því efni,“ segir í fréttinni.Frammistaða Íslands versnar á ný samkvæmt júlítölum ESA. Fjórar tilskipanir orðnar eldri en 2 ára - ein er 9 ára. https://t.co/EEL7q0tX7W pic.twitter.com/KzGUd7wm6l— ESB á Íslandi (@EUinICELAND) July 6, 2017
Mest lesið „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Trump hjólar í páfa Erlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Innlent Flugstjórinn þögull sem gröfinn Innlent Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Erlent Lágflugið vekur athygli erlendis Innlent Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Erlent Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Innlent Fleiri fréttir Flugstjórinn þögull sem gröfinn Lækka gjöld í sveitarfélaginu og fangaverðir segja kerfið komið að þolmörkum Erfiðara að berjast við stjórnvöld en að lifa með náttúruvá „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Vonbrigði með tilmæli og bjórbann í Bláfjöllum Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Maður hífður upp úr Ölfusá Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Ellefu framboðslistar á kjörseðli borgarbúa í vor Fjórar í valdastöðum á fréttamynd ársins Maður stunginn í heimahúsi á Akureyri Hafi áhrif á vísitöluna en vonandi væntingar líka Aðgerðirnar ekki til þess fallnar að koma í veg fyrir að forsenduákvæðið virkist Annar hvalrekinn á nokkrum dögum Fyrir þinginu að breyta svarmöguleikum þó enginn vafi leiki á umsóknarstöðu Til skoðunar að breyta svarmöguleikum á kjörseðli og sprenging í stofnun bókaklúbba Gæsluvarðhaldskröfu yfir Írisi hafnað Ók á tæplega tvöföldum leyfilegum hraða Sjá meira