Segir stjórnvöld Búrma vernda alla íbúa Samúel Karl Ólason skrifar 6. september 2017 10:30 Rohingjamúslimar, nýkomnir til Bangladess. Vísir/AFP
Aung San Suu Kyi, leiðtogi Búrma, sem gengur einnig undir nafninu Mjanmar, segir rangar upplýsingar og falsaðar myndir gefa skakka mynd af ástandinu í Rakhine-héraði. Þaðan hafa nærri því 150 þúsund rohingjamúslimar flúið til Bangladess vegna átaka í héraðinu á einungis tólf dögum. Hún segir hryðjuverkamönnum vera um að kenna. Átökin hófust þegar meðlimir vígahóps sem inniheldur rohingjafólk réðst á lögreglustöðvar í héraðinu. Þá hófst umfangsmikil sókn hers Búrma en flóttamenn segja herinn og vopnaða hópa fólks hafa brennt heilu þorpin til grunna og beitt rohingjafólk miklu ofbeldi. Sameinuðu þjóðirnar vara við því að ofbeldið geti leitt til hörmunga. Samkvæmt tilkynningu frá stjörnvöldum sagði Aung San Suu Kyi í samtali við Recep Tayyip Erdogan, forseta Tyrklands, að ríkisstjórn hennar væri að vernda alla íbúa Rakhine héraðs. Erdogan hafði kallað eftir því að þjóðarleiðtogar heimsins kæmu rohingjafólkinu til aðstoðar og sagði þau vera fórnarlömb þjóernishreinsana, samkvæmt frétt Reuters.Lengi setið undir ofsóknum Rohingjafólkið hefur búið í Búrma um langt skeið og hefur verið lýst sem þeim minnihlutahópi í heiminum sem býr við mestar ofsóknir. Talið er að þeir séu um 1,1 milljón og búa langflestir þeirra í Rakhine héraði í vesturhluta Búrma en stjórnvöld þar hafa ekki viðurkennt þau sem borgara. Rohingjafólkið er íslamstrúar en meirihluti íbúa Búrma eru búddistar. Yfirvöld Búrma hafa verið sökuð um þjóðernishreinsanir og að reyna að reka rohingjafólkið frá landinu.Sakaðir um notkun jarðsprengna Í tilkynningu á Facebooksíðu Utanríkisráðuneytis Búrma er hvergi minnst á flótta rohingjafólksins. Þar segir einungis að ríkisstjórn landsins muni vinna með „vinum sínum um heim allan“ að því að koma í veg fyrir að hryðjuverkahópar festi rætur í Búrma. Embættismenn í Bangladess segja Reuters að her Búrma hafi komið nýjum jarðsprengjum fyrir á landamærum ríkjanna til að koma í veg fyrir að rohingjafólkið snúi aftur yfir landamærin. Heimildarmenn fréttaveitunnar segja að Bangladess muni mótmæla jarðsprengunum opinberlega í dag. Her Búrma segir hins vegar að sprengjunum hafi verið komið fyrir á tíunda áratuginum. Samkvæmt frétt BBC segir talsmaður Aung San Suu Kyi að hryðjuverkamenn hafi mögulega komið sprengjunum fyrir.
Tengdar fréttir Rúmlega 120 þúsund hafa flúið frá Búrma á tveimur vikum Rohingjafólkið hefur búið í Búrma um langt skeið og hefur verið lýst sem þeim minnihlutahópi í heiminum sem býr við mestar ofsóknir. 5. september 2017 11:30 Fjögur hundruð Rohingjar drepnir í Mjanmar Ofbeldið í Rakhine-héraði í landinu fer nú stigvaxandi. 1. september 2017 08:27 Suu Kyi hvött til að grípa í taumana Tæp 90.000 manns sem tilheyra rohingjaættbálkinum hafa flúið ofsóknir í Búrma yfir landamærin til Bangladess. 4. september 2017 17:55 Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Ein matskeið og þá er dauðinn vís Innlent Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Erlent Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Innlent Fleiri fréttir Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Sjá meira
Rúmlega 120 þúsund hafa flúið frá Búrma á tveimur vikum Rohingjafólkið hefur búið í Búrma um langt skeið og hefur verið lýst sem þeim minnihlutahópi í heiminum sem býr við mestar ofsóknir. 5. september 2017 11:30
Fjögur hundruð Rohingjar drepnir í Mjanmar Ofbeldið í Rakhine-héraði í landinu fer nú stigvaxandi. 1. september 2017 08:27
Suu Kyi hvött til að grípa í taumana Tæp 90.000 manns sem tilheyra rohingjaættbálkinum hafa flúið ofsóknir í Búrma yfir landamærin til Bangladess. 4. september 2017 17:55