Erlent

Fjögur hundruð Rohingjar drepnir í Mjanmar

Atli Ísleifsson skrifar
Á þriðja tug líka skolaði á land á árbakka í Bangladess í gær.
Á þriðja tug líka skolaði á land á árbakka í Bangladess í gær. Vísir/AFP

Að minnsta kosti fjögur hundruð meðlimir Rohingja-ættbálksins í Mjanmar hafa verið drepnir í vikunni en ofbeldið í Rakhine-héraði í landinu fer nú stigvaxandi.

Á þriðja tug líka skolaði á land á árbakka í Bangladess í gær og var þar aðallega um konur og börn að ræða.

Óttast er að stjórnarherinn í Mjanmar hafi hert á sókn sinni gegn Rohingjum undanfarna daga en herinn hefur verið sakaður um gróf mannréttindabrot gegn fólkinu, sem er múslimatrúar.

Sóknin hófst í kjölfar þess að aðskilnaðarsinnar Rohingja gerðu árás á varðflokk stjórnarhersins á dögunum.


Tengdar fréttir

Nærri 20.000 flúið á viku

Þjóðflokkurinn flýr átök í Rakhine-héraði Bangladess en átökin í héraðinu versnuðu til muna þegar Rohingya-múslimar réðust á þrjátíu lögreglustöðvar á föstudag. Yfirvöld svöruðu árásunum með hervaldi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×