Hjólandi innbrotsþjófur fór ránshendi um kjötbúð á Grensásvegi Stefán Ó. Jónsson skrifar 28. maí 2017 15:28 Þjófurinn var innan við mínútu í versluninni. Geir Rúnar Birgisson
Brotist var inn í Kjötbúðina að Grensásvegi 48 klukkan 7:30 í morgun. Innbrotsþjófurinn spennti upp útidyrahurðina og hafði á brott með sér það sem var í afgreiðslukassanum sem að sögn eigandans, Geirs Rúnars Birgissonar, var þó ekki nema um 10-15 þúsund krónur. Það séu þó alltaf ákveðin óþægindi að lenda í þessu. „Mesta tjónið er auðvitað í hurðinni sem spennt var upp og þarf að laga, “segir Geir og bætir við að ljóst sé að um vanan þjóf sé að ræða. Hann hafi komið á hjóli og af upptökum úr eftirlitsmyndavélum að dæma hafi hann verið innan við eina mínútu að athafna sig. Geir gerir ekki ráð fyrir því að hann muni leggja fram kæru eða fara fram á aðstoð lögreglu við rannsókn málsins. „Þetta hefur komið fyrir mig einu sinni áður og þá gerðist ekki neitt. Það sést ekkert framan í þjófinn á upptökunni þannig að þeir geta ekkert leitað að honum,“ segir Geir sem hyggst setjast yfir myndbandsupptökurnar á næstunni og ákveða framhaldið að því loknu. Hér að neðan má sjá upptöku úr öryggismyndavél sem Geir birti á Facebook-síðu sinni.
Mest lesið Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Innlent Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Innlent Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi Innlent Gera ekki aðra atlögu Innlent Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Innlent Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Innlent Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Fleiri fréttir Óvarfærið orðalag geti orðið til vandræða í áratugi Kristrún hafi staðið sig best en Inga verst Þögul sem gröfin um meintan trúnaðarbrest Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Deilt um orðalag á kjörseðli, trúnaðarbrestur og vinsældir ráðherra Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Miðflokkurinn úr leik í Árborg Krefja Ingu svara við leikskólaáformum Samfylkingarinnar „Við lítum þetta mál mjög alvarlegum augum“ Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi „Þetta er erfiður mánudagur“ Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Drengurinn kominn heim til sín Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Gera ekki aðra atlögu Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Sjá ekki fyrir endann á ástandinu í fangelsunum Flugstjórinn þögull sem gröfin Lækka gjöld í sveitarfélaginu og fangaverðir segja kerfið komið að þolmörkum Erfiðara að berjast við stjórnvöld en að lifa með náttúruvá „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Sjá meira