Skutu vopnaðan hinsegin aðgerðarsinna til bana Stefán Ó. Jónsson skrifar 18. september 2017 07:12 Scout Schultz fór fyrir samtökum hinsegin fólks í Georgia Tech-háskólanum. Facebook
Lögreglumenn í Georgíuríki í Bandaríkjunum skutu námsmann til bana aðfaranótt sunnudags. Námsmaðurinn er sagður hafa verið framarlega í baráttunni fyrir réttindum hinsegin fólks. Sjálfstæð rannsóknarnefnd hefur verið skipuð vegna málsins. Á vef breska ríkisútvarpsins er því lýst hvernig lögreglumennirnir fundu námsmanninn, Scout Schultz sem hvorki skilgreinir sem karl né konu, á háskólalóð í Atlanta eftir að hafa brugðist við ábendingu um einstakling vopnaðan hníf og byssu. Á myndbandsupptöku er sagt að megi heyra hvernig Schultz neitaði að verða við skipunum lögreglunnar um að leggja frá sér hnífinn. Á Schultz einnig að hafa kallað: „Skjótið mig!“ er hán gekk í átt að lögreglumönnunum. Það hafi verið þá sem Schultz var skotið til bana. Við leit fundust engin merki um að Schultz hafi haft byssu í fórum sínum. Lögreglumaðurinn sem hleypti af hefur ekki verið nafngreindur. Móðir Schultz segir ekkert tilefni hafa verið til að beita skotvopnum í þessum aðstæðum. „Af hverju notuðu þau ekki eitthvað sem var ekki banvænt, eins og piparúða eða rafbyssur?“ Schultz var formaður hinsegin samtaknna í Georgia Tech háskólanum þar sem hán lagði stund á nám við tölvunarfræði. Í yfirlýsingu frá samtökunum segjast þau miður sín yfir fráfalli Schultz. „Hán hefur verið drifkrafturinn í hinsegin samtökunum undanfarin tvö ár. Hán hefur hvatt okkur til að halda stærri og fleiri viðburði.“ Málið er til rannsóknar sem fyrr segir.
Mest lesið Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Innlent „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Innlent Enn þykknar upp hjá SÁÁ Innlent Þingkosningar í Svíþjóð: Stjórnin riðar til falls en að mynda nýja gæti reynst erfitt Erlent Minnst 44 slasast og ein í lífshættu eftir lestarslys í Frakklandi Erlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Innlent Kourani farinn úr landi Innlent Systir Haraldar er látin Erlent Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Innlent Fleiri fréttir Þingkosningar í Svíþjóð: Stjórnin riðar til falls en að mynda nýja gæti reynst erfitt Minnst 44 slasast og ein í lífshættu eftir lestarslys í Frakklandi Systir Haraldar er látin Dönsk kona ákærð fyrir að verða nýfæddum börnum sínum að bana Stefna kanslaranum fyrir meiðyrði um Valkost fyrir Þýskaland Gerðu drónaárásir á verslunarmiðstöð Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Kanna hvort Kim eigi son Biður dómara um að hlífa Clancy við öðrum réttarhöldum Miklar hækkanir á olíumörkuðum í dag Reyndi að vara við að flugvélin færi of hratt Tugir látnir í eldsvoða í flutningaskipi í Kína Boðar til skyndikosninga til að lægja öldurnar í Serbíu Ætli að gefa öllum þúsundir dollara ef repúblikanar sigra Játar aðild að einu stærsta Bitcoin-þjófnaðarmáli sögunnar Heitasta sumarið í Vestur-Evrópu Pakistanar sögðu klerkastjórninni að koma böndum á Húta Viðurkenndi efasemdir: „Ég ætla samt ekki að sýkna hana“ Selenskí kíkti á klakann Gaf Harp og tveimur öðrum ráðgjöfum milljónir í jólagjöf Leggur stefnu AfD að jöfnu við þjóðernishreinsanir Farage kemur frönskum skoðanabróður í klandur Banna breskum þingmönnum að koma til Ísraels Haraldur Noregskonungur borinn til grafar Rétta yfir rússneskum skipstjóra sem sleit sæstrengi við Finnland Leita enn að Renoir-þjófunum Bannar innflutning á kanadískum vörum Réðust á fleiri olíuflutningaskip Sjá meira