Risareikningur gæti beðið flugdólgs sem var skilinn eftir í Keflavík af Lufthansa Birgir Olgeirsson skrifar 31. mars 2017 16:04 Frá flugstöð Leifs Eiríkssonar. Vísir/Vilhelm
Flugstjóri breiðþotu á vegum þýska flugfélagsins Lufthansa þurfti að millilenda á Keflavíkurflugvelli vegna dólgsláta farþega í áætlunarferð frá Los Angeles í Bandaríkjunum til München í Þýskalandi í gær. Það var þýska dagblaðið TZ sem greindi fyrst frá málinu á vef sínum en Ríkisútvarpið greindi frá málinu á vef sínum fyrr í dag.Man ekki eftir öðru eins máli Í umfjöllun TZ er vitnað í talskonu Lufthansa sem segist ekki muna eftir öðru eins máli. Það sé afar sjaldgæft að það þurfi að millilenda vegna óláta farþega því í flestum tilvikum nái áhöfnin að róa þá niður. Í þessu tilviki þurfti hins vegar að tjóðra konuna við sæti hennar með límbandi. Um tveir þriðju af ferðinni voru að baki þegar flugstjórinn tilkynnti farþegunum 260 að lent yrði í Keflavík vegna konunnar. Talskona Lufthansa segist ekki geta skorið úr um hvort konan hafi verið undir áhrifum áfengis eða lyfja.Þurfti að redda sér sjálf Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Suðurnesjum var lögreglunni tilkynnt um málið í gærkvöldi og fór til Keflavíkurflugvallar þar sem konan var handtekin. Hún var látin sofa úr sér í fangaklefa í Keflavík en var látin laus samdægurs að lokinni skýrslutöku. Lögreglan segist hafa bent henni á hvar hún gæti nálgast hótelgistingu en annars þurfti konan að bjarga sér eftir að henni var sleppt.Töluverður kostnaður TZ greinir frá því að kostnaður flugfélagsins við svona millilendingu sé mikill og ekki útilokað að konan verði rukkuð. TZ segir að hefði þessi millilending átti sér stað á München-flugvellinu þá hefði það kostað flugfélagið 8.000 evrur, eða rúmar 960 þúsund krónur miðað við gengi dagsins í dag. RÚV spurði Isavia hvað þessi lending hér á landi kostar Lufthansa. Er kostnaðurinn í kringum 2.500 til 3.000 evrur, eða 300 til 350 þúsund krónur. Þá sé ekki útilokað að flugfélagið rukki konuna vegna eldsneytis sem þurfti við það að fljúga af leið.
Mest lesið Sá barnaníðinginn fyrir utan heimili sitt: „Þetta rífur bara upp öll sár á einu augabragði“ Innlent Kallaði eftir afsögn Þorgerðar Katrínar í ræðustól Alþingis Innlent „Við höfum ekki séð svona frábærar tölur í háa herrans tíð“ Innlent Myndu rústa Póllandi á tveimur til þremur dögum Erlent Fimm mínútna viðbót við aðgerð geti dregið úr áhættu á krabbameini Innlent Fannst eftir rúma tveggja sólarhringa leit: „Hún er eitthvað óvenjuleg þessi hryssa“ Innlent „Að bilast“ yfir útlensku í almannarými Innlent Bein útsending: Daði Már gangsetti vindmyllur Innlent Úrskurður Hæstaréttar bakslag fyrir Trump Erlent Skipuleggjandi smygls handtekinn á Spáni og ákærður hér Innlent Fleiri fréttir Ingólfur leysir Baldur af Gátu ekki gefið skýr svör um mögulegt ástarsamband Tvö alvarleg atvik hjá dagforeldri skráð „Það kom babb í bátinn í Hafnarfjarðarhöfn“ „Við höfum ekki séð svona frábærar tölur í háa herrans tíð“ Útkall lengst úti á hafi þriðja daginn í röð Laga þurfi fegurðarskynið að orkuskiptum Ekki víst að asbestmengun hafi borist með reyknum Skipuleggjandi smygls handtekinn á Spáni og ákærður hér Fiskikóngurinn og Háskólinn rannsaka skötu Eftir því sem lengra líður eykst óvissan Stór skjálfti í Langjökli fannst víða Kallaði eftir afsögn Þorgerðar Katrínar í ræðustól Alþingis „Að bilast“ yfir útlensku í almannarými Fangar þurfi að fylgja samþykktri dagskrá í dagsleyfum Segir fækkun útlendinga sýna að stjórnvöld nái tökum á innflytjendamálum Bein útsending: Daði Már gangsetti vindmyllur Stjórnarráðið beini auglýsingafé frá samfélagsmiðlum Sá barnaníðinginn fyrir utan heimili sitt: „Þetta rífur bara upp öll sár á einu augabragði“ Reyndu að bjarga málunum en voru of sein Áfall að sjá dæmdan kynferðisbrotamann fyrir utan heimilið Ummerki um mannaferðir í Toppstöðinni Heimilislæknar minna ríkisstjórn á gefin loforð „Það eru gríðarlega miklir hagsmunir í húfi“ Ásmundur skipaður forseti Tímabært sé að skoða vaxtarmörk borgarinnar Í forgangi sé að ræða við starfsfólk SÁÁ og tryggja vinnufrið Útlendingum fækkað það sem af er ári Fimm mínútna viðbót við aðgerð geti dregið úr áhættu á krabbameini Mun Tækniskólinn rísa í Úlfarsárdal? Sjá meira